Freyr brast í grát í beinni útsendingu í Noregi - Talaði um Ingvar og er á förum

Freyr Alexandersson er á förum frá norska úrvalsdeildarfélaginu Rosenborg og tekur að öllum líkindum við enska B-deildarliðinu Swansea City.

Freyr var með tárin í augunum eftir 2-1 sigur Rosenborg á erkifjendunum í Molde í norsku úrvalsdeildinni í kvöld. Hann faðmaði leikmenn sína og fagnaði með stuðningsmönnum félagsins.

„Að öllum líkindum fer ég. Það var fyrst núna, þegar ég ræddi við framkvæmdastjórann Tore Berdal, að ég fékk að vita að félögin hefðu náð samkomulagi,“ sagði Freyr í samtali við norsku sjónvarpsstöðina TV 2.

Samkvæmt heimildum TV 2 fær Rosenborg á bilinu fjórar til fimm milljónir norskra króna fyrir Frey og aðstoðarþjálfara hans, Jonathan Hartmann.

„Mér þykir svo vænt um Rosenborg. Þess vegna líður mér svona. Ég elska leikmennina og fólkið sem ég vinn með,“ sagði Freyr.

Hann kvaðst einnig vera mjög miður sín vegna andláts Ingvars Jónssonar, fyrrverandi leikmanns síns. Ingvar lést á miðvikudag eftir hetjulega baráttu við krabbamein.

Freyr tók við Rosenborg um miðjan júlí þegar liðið sat í næstneðsta sæti deildarinnar. Undir hans stjórn hefur liðið farið á mikið flug og er nú í góðri stöðu til að tryggja sér bronsverðlaun.

Rosenborg hefur að meðaltali fengið 2,41 stig í leik undir stjórn Freys en til samanburðar er meðaltal toppliðs Bodø/Glimt 2,42 stig.

Alexander Tettey mun að öllum líkindum stýra Rosenborg í síðustu tveimur leikjum tímabilsins.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「DV.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读