Enn ein vandræðin hjá Mette-Marit – Hvað er á upptökunni sem fólk vill greiða milljónir fyrir?

Það getur verið erfitt að segja algjörlega skilið við fortíðina, meira að segja þótt það séu liðin meira en 25 ár frá því að atburðirnir áttu sé…

Pressan

Laugardaginn 28. nóvember 2026 17:30

Mette Marit, drottning, og Hákon Noregskonungur. Mynd: Rune Hellestad - Corbis/Getty Images)

Það getur verið erfitt að segja algjörlega skilið við fortíðina, meira að segja þótt það séu liðin meira en 25 ár frá því að atburðirnir áttu sér stað. Þetta fer ekki fram hjá norsku hirðinni  þessa dagana  vegna nýrra upplýsinga sem eru komnar fram um fortíð Mette-Marit drottningar.

Í nýrri bók, Hoffet, sem kom út um miðjan nóvember, er fjallað um meinta myndbandsupptöku sem er sögð tengjast drottningunni.

Eftir því sem segir í bókinni þá hafa margir auðjöfrar sýnt upptökunni mikinn áhuga og eru að sögn reiðubúnir til að greiða sem nemur tugum milljóna íslenskra króna fyrir hana. Plejada skýrir frá þessu.

Höfundar bókarinnar eru blaðamennirnir Frode Hansen og Ulf André Andersen og segja þeir frá ýmsu áhugaverðu um norsku hirðina.

Þeir segja að upptaka af Mette-Marit sé í vörslu fyrrum unnusta hennar. Er upptakan sögð vera frá því áður en hún og Hákon konungur, þá krónprins, gengu í hjónaband í ágúst 2001.

Fólk, sem tengist hirðinni, er sagt hafa reynt að koma höndum yfir upptökuna til að koma í veg fyrir að hún verði birt. Meðal þeirra er auðmaðurinn Stein Erik Hagen er hann í samvinnu við aðra auðmenn sagður hafa boðið sem nemur um þrjátíu milljónum íslenskra króna fyrir upptökuna.

Þýskt tímarit er sagt hafa verið reiðubúið til að greiða sem nemur um 150 milljónum fyrir upptökuna.

Mette-Marit á sér auðvitað fortíð eins og við öll en fortíð hennar tengist að hluta skemmtanalífinu í Osló og var líf hennar óvenjulegt miðað við það sem flestir eiga að venjast. Fortíð hennar vakti strax mikla athygli þegar tilkynnt var um trúlofun hennar og Hákons.

En hvað er á fyrrnefndri upptöku er ekki vitað. Fyrrum unnusti hennar hefur ekki viljað tjá sig um málið og heldur ekki norska hirðin.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「DV.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读