6 og 7 ára börnum bjargað úr viðbjóðslegri íbúð – Kunnu ekki að fara á klósettið og gátu bara sagt „iPad“

Tveimur börnum, 6 og 7 ára, var bjargað úr viðbjóðslegri íbúð í Lundúnum í febrúar. Þau gátu varla talað né gengið. „iPad“ var nánast eina orðið…

Pressan

Laugardaginn 28. nóvember 2026 20:20

Þessi börn tengjast fréttinni ekki. Mynd úr safni.

Tveimur börnum, 6 og 7 ára, var bjargað úr viðbjóðslegri íbúð í Lundúnum í febrúar. Þau gátu varla talað né gengið. „iPad“ var nánast eina orðið sem þau gátu sagt.

Metro skýrði frá þessu nýlega eftir að yfirvöld skýrðu frá málinu. Íbúðin var full af drasli og skít og börnin notuðu bleiu. Einu orðin sem þau kunnu voru „iPad“, „Fritella“ og „Maryland“.

Lögreglan telur að börnin hafi oft verið bundin langtímum saman við húsgögn í íbúðinni. Þau kunnu ekki að nota klósett og gengu á undarlegan hátt þar sem tærnar á þeim voru allar sundurglenntar.

Þau voru í fötum á þriggja ára börn, deildu einum skó og þjáðust af exemi.

Það var sendill sem gerði lögreglunni viðvart um börnin. Rannsókn leiddi í ljós að barnaverndaryfirvöld í Hounslow, þar sem börnin fundust, höfðu fengið fimm tilkynningar um þau síðan 2023. Meðal þeirra sem tilkynntu barnaverndaryfirvöldum um börnin voru nágrannar þeirra, faðir barnanna, frænka þeirra og tannlæknir.

Frænkan sagði íbúðina vera „viðbjóðslega“, dimma, límt fyrir glugga, engin birta kæmist inn og teikningar væru á veggjunum.

Í skýrslu um málið kemur fram að börnin hafi ekki vitað hvað stigi var eða hvað það var að fara út í búð. Þau kunnu ekki að nota rúllustiga eða lyftu.

Móðir þeirra er sögð hafa lagt mikið á sig til að forðast félagsmálayfirvöld, hafi lagt fram ásakanir um heimilisofbeldi og staðhæft að hún kenndi börnunum heima. Allt þetta hafði áhrif á getu félagsmálayfirvalda til að takast á við málið.

Móðirin hafði haldið börnunum frá föður þeirra allt síðan í heimsfaraldri kórónuveirunnar.

Börnin hafa búið hjá frænku sinni síðan málið kom upp. Þau hafa tekið töluverðum framförum og geta nú til dæmis myndað stuttar setningar.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「DV.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读