Lögreglumenn sáu ungling í gulri hettupeysu - Það sem gerðist næst dró dilk á eftir sér

Nefnd um eftirlit með lögreglu minnir lögregluna á Suðurnesjum á að mikilvægt sé að hún eigi að hafa samband við foreldra eða forráðamenn einstaklinga undir lögaldri sem höfð séu afskipti af. Tilefnið er mál sem kom upp á Ljósanótt í Reykjanesbæ í september síðastliðnum. Lögreglan handtók þá 15 ára pilt en hann var í gulri hettupeysu eins og einstaklingur sem lögreglumenn voru að leita að. Lögreglumenn beittu valdi við handtökuna með þeim afleiðingum að pilturinn meiddist. Hins vegar var aldrei haft samband við foreldra hans að fyrra bragði til að upplýsa þá um handtökuna. Fljótlega kom í ljós að pilturinn var ekki sá sem verið var að leita að.

Annað foreldri drengsins lagði fram kvörtun til nefndar um eftirlit með lögreglu. Foreldrið sagði handtökuna hafa verið harkalega, fjórir lögreglumenn hafi legið ofan á drengnum. Í kjölfarið hafi hann verið með sár á andliti og höndum og kvartað undan verkjum í hné. Þá hafi persónulegir munir skemmst eða tapast við handtökuna, þar á meðal úr, peysa og hálsfesti. Jafnframt voru gerðar athugasemdir við að foreldrum hafi ekki verið tilkynnt um handtökuna, þrátt fyrir að drengurinn hafi verið 15 ára þegar hún átti sér stað. 

Foreldrarnir hafi fengið símtal daginn eftir vegna afhendingar úrsins og í kjölfarið upplýsingar um að lögregla hefði farið mannavillt við handtökuna. Kvartað var yfir harkalegri handtöku á barni, mögulegri óhóflegri valdbeitingu, ófullnægjandi upplýsingaskyldu til foreldra, meðferð persónulegra muna og að skort hafi viðeigandi skráningu.

Hljóp

Nefndin leitaði upplýsinga um málið frá lögreglunni á Suðurnesjum og fékk þær upplýsingar að tilkynning hafi borist um aðila í gulri hettupeysu og annan í svörtum jakka með loðkraga sem gætu tengst slagsmálum. 

Lögreglumenn hafi komið auga á aðila sem samsvöruðu þessari lýsingu. Lögreglumaður hafi aukið hraðann og ætlað að gefa sig á tal við aðilana. Þegar lögreglumaðurinn hafi verið rétt ókominn að þeim hafi aðilinn í gulu peysunni snúið sér við og fleygt glerglasi eða glerflösku í jörðina og tekið á sprett frá lögreglumönnum sem hafi veitt eftirför:

„Honum voru ítrekað gefin fyrirmæli um að stöðva sem hann hlýddi ekki. Lögreglumenn gerðu nokkrar tilraunir til að ná honum sem hafðist að lokum.“

Kom enn fremur fram í svari lögreglu að drengurinn hafi verið tekin í lögreglutök og við það hlotið áverka á höku og vinstri úlnlið, en þar hafi verið um skrámur að ræða sem blæddi lítillega úr. Farið hafi verið með hann í sjúkrabíl þar sem hlúð var að honum.

Lögreglumenn hafi rætt við drenginn sem hafi ítrekað beðist afsökunar og sagst ekki vita af hverju hann hafi hlaupið frá lögreglu. Hanni hafi orðið hræddur og ekki vitað hvað hann ætti að gera:

„Útskýrt var fyrir honum að við hefðum einungis vilja ræða við hann og leiðinlegt að þetta hafi þurft að enda svona.“

Drengurinn hafi síðan í raun gengið sáttur frá lögreglu:

„Eftir að við áttum gott spjall.“

Foreldrar

Segir því næst í upplýsingunum frá lögreglu að daginn eftir hafi verið hringt í skráð símanúmer móður drengsins en faðir hans hafi svarað. Faðirinn hafi sagst þakka fyrir að fá símtal varðandi úr drengsins en ekki verið sáttur við að hafa ekki fengið símtal varðandi afskipti lögreglu af drengnum kvöldið áður. Sérstaklega þar sem hann hafi slasast við afskipti lögreglu. Faðirinn hafi ekki verið sáttur með samskiptaleysi lögreglu í þessu máli. Umræddur starfsmaður embættisins sem hafi hringt í hann hafi komið þessu áleiðis og síðan hringt aftur í föðurinn og útskýrt málið fyrir honum.

Faðirinn hafi þakkað fyrir en ítrekað að honum þætti það athugunarvert að lögregla hafi ekki haft samband fyrr vegna málsins.

Með svörum lögreglu til nefndarinnar fylgdi frumskýrsla þar sem kom fram að drengnum hafi verið kynnt réttarstaða sakbornings og allt sem í henni fælist sem hann hefði sagt að hann skildi. Drengnum hafi einnig verið kynnt að hann væri handtekinn fyrir að fara ekki eftir fyrirmælum lögreglu. Það hafi gleymst að hafa samband við forráðamann þar sem mikið álag hafi verið á lögreglu umrætt kvöld þar sem þúsundir manna hafi verið í bænum vegna Ljósanætur.

Hafa samband

Nefnd um eftirlit með lögreglu segir í sinni niðurstöðu um kvörtun foreldris drengsins að hún ítreki skilvirka notkun búkmyndavéla við störf lögreglu og telji óheppilegt að ekki sé að finna upptökur úr búkmyndavélum sem hefðu getað varpað skýrara ljósi á málsatvik.

Nefndin beinir jafnframt þeim tilmælum til embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum að ítreka við starfsmenn mikilvægi þess að haft sé samband við foreldra eða forráðamenn ólögráða einstaklinga sem lögregla hafi afskipti af, án tafar líkt og 1. gr. reglugerðar um réttarstöðu handtekinna manna mæli fyrir um.

Nefndin bendir foreldrinu á að samkvæmt sakamálalögum sé hægt að krefjast bóta vegna atviks sem þessa.

Nefndin telur með vísan til gagna málsins og málsatvika að öðru leyti að lögregla hafi aðhafst innan þeirra heimilda sem henni séu gefnar í lögreglulögum, í umrætt sinn. Sé því ekki tilefni til að aðhafast frekar vegna annarra þátta kvörtunarinnar nema að beina áðurnefndum tilmælum ltil lögreglunnar á Suðurnesjum að henni beri að hafa samband við forerldra eða forráðamenn þegar höfð séu afskipti af ólögráða einstaklingum,

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「DV.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读