Andlát Ingvars til umfjöllunar í erlendum fjölmiðlum - Rifja upp þátttöku hans í merkri stund á EM

Andlát Ingvars Jónssonar, markvarðar Víkings og fyrrum landsliðsmanns Íslands, hefur vakið mikla athygli í erlendum fjölmiðlum.

Ingvar lést á miðvikudag, aðeins 37 ára að aldri, eftir baráttu við krabbamein sem hann greindist með fyrr á þessu ári.

Ensku fjölmiðlarnir Daily Mirror, Daily Star og The Sun hafa allir fjallað um andlát Ingvars en einnig hefur verið fjallað um það á vefmiðlunum JOE og GiveMeSport.

Í umfjöllun ensku miðlanna er sérstaklega rifjaður upp þáttur Ingvars í sögulegu Evrópuævintýri íslenska landsliðsins í Frakklandi árið 2016.

Ingvar var í landsliðshópnum sem sló Englendinga eftirminnilega úr leik með 2-1 sigri í sextán liða úrslitum mótsins.

Daily Mirror fjallar einnig um glæsilegan feril Ingvars hér á landi og bendir sérstaklega á árangur hans með Stjörnunni árið 2014 þegar Garðbæingar urðu Íslandsmeistarar án þess að tapa leik. Ingvar var valinn besti leikmaður deildarinnar af leikmönnum hennar það árið.

Umfjöllunin einskorðast ekki við Bretland en þýska stórblaðið Bild, spænska íþróttablaðið AS og sænski miðillinn Fotbollskanalen hafa einnig fjallað um andlát Ingvars.

Ingvar varð fimm sinnum Íslandsmeistari á ferlinum og lék átta A-landsleiki fyrir Íslands hönd.

Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「DV.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读