„Kossaskuld“ getur haft áhrif á ástarsambönd

Hefur þú heyrt um „kossaskuld“? Sérfræðingar segja að hún geti haft neikvæð áhrif á ástarsambönd og því er rétt að hafa hana í huga.

„Kossaskuld“ getur komið fram þegar pör glíma við „snertingaskort“. Very Wll Mind segir „snertingaskort“ vera þegar „þú færð ekki næga líkamlega snertingu en það getur valdið stressi og tilfinningalegum óþægindum“.

Massimo Fontana, sálfræðingur og klínískur kynfræðingur, sagði í samtali við Tyla að „óþægindi geti byggst upp þegar manneskja fær sífellt minni og síður jákvæða líkamlega snertingu í langan tíma“.

„Þetta, er í hnotskurn, að vera í sambandi þar sem engin líkamleg snerting frá hinum aðilanum á sér stað. Nema þú sért snertifælin, þá er líkamleg snerting grundvallarþörf fyrir fólk. Þetta er eitt af því sem gerir að verkum að okkur finnst við örugg, ekki bara í líkama okkar heldur einnig í umhverfinu sem við lifum í,“ sagði hann.

„Líkamleg snerting getur falið í sér ástúð, sem við verðum að finna fyrir, en hún má ekki vera uppgerð. Við þurfum faðmlög, að haldast í hendur, kyssast og hversdagslega snertingu sem segir taugakerfinu að makinn sjái okkur og þrái okkur,“ sagði hann einnig.

Hvað er „kossaskuld“?

Ef þér finnst að sambandið þitt glími við „snertingaskort“, þá getur það valdið „kossaskuld“ tilfinningu.

Sérfræðingar segja að ef öðrum aðilanum finnst makinn ekki eins ástúðlegur og áður, þá finnist þeim kannski að að þeir „skuldi“ makanum mikla ástúð. Álag í sambandinu geti valdið því að fólki finnist það þurfa að sýna hinum aðilanum ástúð, jafnvel þótt þeim langi ekki til þess og það sé aldrei í lagi.

Ef annar aðilinn sýni minni ástúð en venjulega, þá geti það valdið auknu álagi og látið fólki líða enn verr.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「DV.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读