„Ég er með hinum fullkomna manni en það er vandamál í kynlífinu sem ég get ekki hunsað“
„Er eitthvað til sem heitir hinn „fullkomni maður“? er eflaust spurning sem margar konur, og karlar, hafa spurt sig. Pistlahöfundur, sem skrifaði í Metro, taldi sig einmitt hafa fundið hinn fullkomna mann en þau eru búin að vera í sambandi í um ár núna.
Hann er herramaður að hennar sögn, foreldrar hans eru himinlifandi yfir að hún hafi kynnst svona frábærum manni og vinkonur hennar öfunda hana.
En það er ákveðið vandamál í svefnherberginu sem hún er ekki viss um að hún geti hunsað.
„Ég er með frábæran kærasta, við höfum verið saman í tæpt ár. Á yfirborðinu er hann svo fullkominn á allan hátt að vinkonur mínar öfunda mig og foreldrar mínir eru himinlifandi yfir að ég hafi kynnst svona frábærum manni.
En það sem engin veit er að við glímum við risastórt vandamál sem ég ræði aldrei.
Ég verð sorgmædd vegna þessa því það skiptir engu hvað ég geri, hann hefur mjög takmarkaðan áhuga á kynlífi.
Í fyrstu hélt ég að hann væri bara svona mikill herramaður og fannst gott að hafa hitt mann sem hugsaði ekki bara um að fá mig í rúmið strax.
En eftir því sem vikurnar liðu fór ég að hafa áhyggjur af að honum fyndist ég ekki nógu aðlaðandi.
Það skipti engu máli hvaða kynæsandi nærfötum ég klæddist eða hvað ég gerði til að æsa hann, allt sem tengdist kynlífi hjá honum virtist vera þvingað fram.
Að lokum, eftir tæpa sex mánuði, fannst mér að ég þyrfti að ræða þetta og það endaði með að hann grét. Hann sagðist elska mig svo mikið og að við ættum frábæra framtíð fyrir höndum saman en að hann hafi í grunninn ekki mikinn áhuga á kynlífi.
Hann sagðist hafa reynt mikið og hafi meira að segja leitað læknis en staðreyndin sé að hann sé einkynhneigður og það sé ekki mikið sem hann geti gert við því.
Þetta er svo erfitt fyrir mig því ég elska hann svo mikið en ég er ekki viss um að ég geti lifað lífi þar sem ég stunda varla kynlíf,“ skrifaði konan.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗