„Ég elska að gera mikið úr jólunum“
Diljá er með allt á hreinu þegar kemur að jólunum! Ertu að tengja?
Diljá Helgadóttir lögmaður er félagsvera og elskar að klæða sig upp á. Hér er hún klædd rauðum kjól. Ljósmynd/Aðsend
Diljá Helgadóttir lögmaður býr í Lundúnum ásamt eiginmanni sínum, Snæbirni Vali Ólafssyni, og hundinum Paris. Hún er jólabarn út í gegn og leggur mikið upp úr því að jólin séu einstök. Í ár ætlar hún að fara út að borða á aðfangadag því á jóladag fara þau til Ítalíu á skíði með fjölskyldu hennar.
„Ég er mikið jólabarn þannig að jólin byrja frekar snemma hjá mér. Vinnufélagar mínir hafa meira að segja gefið mér leyfi til að byrja að spila jólalög um miðjan október, sem segir líklega sitt! En tilfinningin fyrir jólunum kemur fyrir alvöru þegar London fer í jólabúninginn, ljósin kvikna og maður fer að sjá fyrstu skreytingarnar,“ segir Diljá spurð að því hvaða hug hún beri til jólanna. Hún á bara hlýjar jólaminningar frá æskuárum sínum.
„Á aðfangadagsmorgun var ég alltaf ótrúlega spennt að vakna og sjá hvað Kertasníkir hafði skilið eftir í jólasokknum mínum. Þrátt fyrir að ég sé orðin fullorðin þá virðist hann merkilega oft rata til mín,“ segir Diljá sem fær enn þá í skóinn. Þegar hún var barn hófst aðfangadagur yfirleitt á fótboltaæfingu.
„Svo fór ég í göngutúr, leit við hjá nánustu vinkonum og skiptist á jólagjöfum. Oft var mér boðið inn í heitt súkkulaði og það var alltaf ótrúlega kósý. Það var alltaf mikil eftirvænting í loftinu. Á meðan var undirbúningurinn í fullum gangi heima. Pabbi fór á hverju hausti á rjúpu og dagana fyrir jól hamfletti hann þær og verkaði. Pabbi skreytti jólatréð og mamma eldaði jólamatinn,“ segir Diljá og rifjar upp að mamma hennar hafi alltaf gert besta jólaísinn eftir gamalli uppskrift frá Elsu ömmu hennar. Jólin á æskuheimili Diljár voru í föstum skorðum og hófust jólin á slaginu sex.
„Ég held að það sem sitji mest eftir hjá mér sé einmitt þessi eftirvænting yfir daginn, fólkið sem maður hitti, allir að undirbúa eitthvað og svo þegar fjölskyldan kemur saman um kvöldið. Fyrir mér hefur undirbúningurinn alltaf verið nánast jafn stór hluti af jólunum og aðfangadagskvöldið sjálft.“
Hér eru hjónin á skautum en í ár ætla þau að bregða út af vananum og fara á skíði í Ölpunum um jólin. Ljósmynd/Aðsend
Fer aldrei í jólaköttinn
Hvaða jólahefð úr æsku hefur þú haldið fastast í?
„Að fara alls ekki í jólaköttinn! Það hefur alltaf verið mikilvægt að vera í einhverri nýrri flík, þess vegna bara sokkum svo maður fari ekki í jólaköttinn. Einnig að klæða sig upp á og gera sig fína á aðfangadag,“ segir Diljá og nefnir að það skipti hana miklu máli að það sé fallega lagt á borð um jólin og að hugsað sé út í smáatriði þegar kemur að borðhaldi.
Hefur einhver gömul fjölskylduhefð horfið sem þú saknar?
„Ég hef ekki haldið öllum matarhefðunum að heiman síðan ég flutti til Lundúna. Mamma gerir til dæmis alltaf laufabrauð og steikt brauð fyrir jólin og ég sakna þess mikið. Ég hef enn ekki tekið mig til og gert það sjálf hérna úti. Svo sakna ég þess auðvitað að hafa ömmur mínar og afa með okkur um jólin. Þegar ég var yngri vorum við svo heppin að föðuramma mín, Elsa, og Óskar og Elín, móðurafi minn og -amma, vörðu jólunum með okkur. Þau eru öll látin í dag og þótt samveran með þeim hafi kannski ekki verið „hefð“ í hefðbundnum skilningi er hún órjúfanlegur hluti af jólaminningunum mínum.“
Hvernig lítur aðfangadagur út hjá þér frá morgni til kvölds?
„Aðfangadagur byrjar yfirleitt frekar rólega hjá mér. Ég vakna, fæ mér kaffi og reyni að ná æfingu áður en dagurinn fer almennilega af stað. Við Snæbjörn pössum raunar alltaf upp á að hreyfa okkur yfir jólin. Þegar við erum á Íslandi förum við yfirleitt saman í ræktina en hér í Lundúnum höfum við gert það að hefð að taka æfingu saman á aðfangadagsmorgun og fara svo út að hlaupa hina dagana,“ segir Diljá. Það kemur þó fyrir að hún sé að vinna fyrir hádegi á aðfangadag og þá er planið aðeins öðruvísi.
„Þegar við höldum jólin heima hjá okkur er ég yfirleitt búin að leggja á borðið kvöldið áður og ganga frá eins miklu og hægt er. Ég hef mjög gaman af þessum smáatriðum. Ég prenta til dæmis út matseðil fyrir kvöldið og passa að kampavínið sé orðið vel kalt í vínkælinum. Yfir daginn hjálpumst við svo að við að undirbúa matinn og gera allt klárt,“ segir Diljá sem er yfirleitt með þriggja rétta matseðil.
„Í ár ætlum við þó aðeins að breyta út af vananum og fara út að borða á aðfangadag. Við fljúgum til Madonna di Campiglio á Ítalíu á jóladag til að hitta fjölskyldu mína. Okkur finnst ekki skynsamlegt að fylla ísskápinn af jólamat rétt áður en við förum úr landi. Þannig að jólin verða aðeins öðruvísi í ár, en ekkert minna hátíðleg. Þannig að þetta verða dásamleg jól í ár, byrja á borgarlífinu og enda í ítölsku Ölpunum á skíðum.“
Ertu vanaföst um jólin eða finnst þér gaman að breyta til?
„Ég er vanaföst á það sem mér finnst raunverulega skipta máli, sem er að verja tíma með fólkinu mínu, en að öðru leyti finnst mér mjög gaman að breyta til. Ég held að hefðir eigi að vera eitthvað sem maður hlakkar til en ekki reglur sem maður verður að fylgja. Síðan ég flutti til Lundúna hef ég líka þurft að skapa mínar eigin jólahefðir og mér finnst það mjög skemmtilegt; að taka það besta úr jólunum sem ég ólst upp við og bæta svo nýju við. Undanfarin þrjú ár hef ég til dæmis haldið árlegan julefrokost fyrir vini okkar hér í Lundúnum. Það er orðin ein af mínum uppáhaldshefðum í aðdraganda jólanna og hefur alltaf tekist einstaklega vel. Mér finnst svo gaman að safna vinahópnum saman yfir góðum mat og drykk og skapa smá jólastemningu!“
Íslensk Þorláksmessa í Lundúnum
Er eitthvað sem þú gerir alltaf á Þorláksmessu?
„Á Íslandi var alveg heilagt að rölta niður Laugaveginn á Þorláksmessu, klára síðustu jólagjafirnar og fara svo út að borða. Ég hef eiginlega flutt þá hefð með mér hingað út. Nú röltum við um jólaskreytt Covent Garden og förum svo út að borða á Rules, sem var stofnaður árið 1798 og er elsti veitingastaðurinn í Lundúnum. Það er einstaklega gamaldags og hátíðleg stemning þar og staðurinn sérhæfir sig í villibráð. Mér finnst skemmtilegt að hafa þannig búið til okkar eigin Lundúnaútgáfu af Þorláksmessuhefðinni.“
Ertu búin að kaupa allar jólagjafir í nóvember eða ertu á hlaupum 23. desember?
„Ég er yfirleitt mjög tímanlega búin að græja gjöfina fyrir eiginmanninn því hún hefur forgang. Restin endar hins vegar stundum í smá stressi rétt fyrir jól. Þannig að ég vildi gjarnan segja að ég væri nóvembermanneskjan, en raunveruleikinn er aðeins nær 23. desember.“
Hvenær setur þú upp jólatréð?
„Um miðjan nóvember! Því fyrr því betra. Það er svo mikil vinna að skreyta jólatréð fallega að mér finnst alveg sjálfsagt að leyfa því að njóta sín sem lengst.“
Er eitthvert jólaskraut sem hefur sérstakt tilfinningalegt gildi fyrir þig?
„Nei, en ætli það breytist ekki þegar maður eignast börn og þau föndra eitthvað voða fínt fyrir mann?“
Hvað mætti alveg hverfa úr jólaundirbúningnum?
„Pressan um að allt þurfi að vera fullkomið. Ég elska að gera mikið úr jólunum, en það á að vera af því að manni finnst það skemmtilegt, ekki vegna þess að maður telur sig þurfa að uppfylla einhvern jólastaðal.“
Ertu góð í að velja jólagjafir?
„Ég held það! Ég legg allavega mikla hugsun í gjafir og reyni að muna eftir litlum hlutum sem fólk hefur nefnt löngu áður. Mér finnst besta gjöfin vera eitthvað sem sýnir að maður hafi raunverulega hlustað á manneskjuna, ekki endilega það dýrasta eða stærsta.“
Diljá nýtur þess í botn að búa í Lundúnum og upplifa allt sem borgin hefur upp á að bjóða. Ljósmynd/Aðsend
Hver er eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið?
„Maðurinn minn er einstaklega góður í að velja gjafir og leggur alltaf mikla hugsun í þær. Hann hefur til dæmis gefið mér fallega Gucci-tösku, feld og skartgripi sem mér þykir mjög vænt um. Það sem stendur þó mest upp úr er hvað hann vandar sig alltaf við að finna eitthvað sem hann veit að hentar mér og mig langar í.“
En sú besta sem þú hefur gefið?
„Líklega jólaskeið sem ég gaf mömmu minni fyrir tveimur árum. Íslensku jólaskeiðarnar eru silfurskeiðar sem hafa verið gerðar árlega frá árinu 1946, með nýju mynstri og ártali fyrir hver jól, og hafa orðið að ákveðnum söfnunargripum sem ganga jafnvel á milli kynslóða.
Þegar mamma var barn gaf hún Elínu mömmu sinni jólaskeið hver jól og með árunum varð til fallegt safn af skeiðum með mismunandi ártölum. Fyrir tveimur árum ákvað ég að taka upp þráðinn og gaf mömmu jólaskeið þess árs. Mér þótti sérstaklega vænt um þá gjöf, að snúa gömlu hefðinni svolítið við og gefa mömmu minni það sem hún hafði sjálf gefið mömmu sinni sem barn. Það er líka eitthvað sérstaklega fallegt við gjafir sem tengja saman kynslóðir og hafa sögu á bak við sig.“
Diljá hefur búið sér til sínar eigin jólahefðir. Ein af þeim er að fara alltaf á veitingastaðinn Rules sem er í miklu uppáhaldi. Ljósmynd/Aðsend
Íslenskt konfekt er hættulegt
Hvaða jólakræsingar geturðu alls ekki staðist?
„Ætli það sé ekki íslenskt konfekt. Það er hættulega gott. Það virðist einhvern veginn alltaf vera skál af því fyrir framan mann um jólin.“
Er einhver jólamatur sem allir virðast elska nema þú?
„Það hefur aldrei verið hefð fyrir hamborgarhrygg heima hjá mér og ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei alveg skilið hamborgarhryggsæðið. Ég vel rjúpuna alla daga.“
Bakarðu fyrir jólin?
„Já, ég baka alltaf lakkrístoppa. Ég hef reyndar aðeins tekið uppskriftina lengra og bæti Mars eða Lion Bar út í, það gerir þá alveg hættulega góða.“
Hvert er uppáhaldsjólalagið?
„Michael Bublé kemur mér eiginlega alltaf í jólaskap, það er erfitt að velja bara eitt lag.“
Horfir þú alltaf á einhverja ákveðna jólamynd eða jólaþátt?
„Love Actually er án efa langbesta jólamyndin og það skemmir auðvitað ekki fyrir að hún gerist í Lundúnum, þar sem ég bý.“
Hafa jólin breyst mikið hjá þér eftir að þú varðst fullorðin?
„Já, ætli stærsta breytingin sé ekki að maður fer úr því að jólin séu eitthvað sem gerist í kringum mann yfir í að skapa þau sjálfur. Sem barn hugsar maður auðvitað mest um pakkana og eftirvæntinguna, en í dag fæ ég líklega jafn mikla ánægju út úr undirbúningnum, því að leggja fallega á borð, velja matinn og búa til stemninguna. Svo metur maður samveruna líka meira eftir því sem maður verður eldri.“
Hvað finnst þér mikilvægast við jólin í dag?
„Samveran. Eftir því sem ég verð eldri átta ég mig betur á því að það er alls ekki sjálfgefið að fá fólkið sitt saman. Góður matur, fallegt borð og pakkar eru yndislegir hlutir, en fólkið í kringum borðið er það sem maður man eftir.“
Ertu góð í að taka þér raunverulegt frí yfir hátíðarnar eða fylgir vinnan þér heim?
„Ég vinn yfirleitt eitthvað smá á milli jóla og nýárs og mér finnst það bara allt í lagi. Þá geri ég það að heiman og reyni að hafa dagana rólega. Sem lögmaður finnst mér eðlilegt að það komi stundum upp að maður þurfi að sinna einhverju í fríi og ég lít ekkert endilega á það sem neikvætt. Fyrir mér skiptir meira máli að geta haft sveigjanleika og notið frísins í kringum það.“
Diljá leggur mikið upp úr því að leggja fallega á borð og svo útbýr hún matseðil til þess að auka stemningu svo um munar. Ljósmynd/Aðsend
Allt eftir eigin höfði
Er erfitt fyrir lögmanninn að hætta að skipuleggja og stjórna þegar jólin ganga í garð?
„Ég held að það sé bara almennt erfitt fyrir mig að hætta að skipuleggja! Ég geng svo langt að prenta út matseðla og nafnspjöld fyrir jólaborðið. En mér finnst skipulag einmitt vera lykillinn að því að geta síðan slakað á og notið. Svo má maður heldur ekki gleyma því að ef eitthvað klikkar er það líka hið besta mál, það er lítið vit í að eyða jólunum, eða lífinu, í að pirra sig á einhverju sem maður getur hvort sem er ekki breytt.“
Hver í fjölskyldunni er líklegastur til að vilja hafa allt eftir sínu höfði um jólin?
„Af mér, Snæbirni og Paris? Það er engin spurning – það er ég.“
Hefur eitthvað farið eftirminnilega úrskeiðis hjá þér um jólin?
„Ekkert sem ég man sérstaklega eftir, sem segir kannski meira um mig en jólin sjálf. Ég er ekki mjög dugleg að velta mér upp úr því sem betur hefði mátt fara. Ef eitthvað klikkar þá klikkar það, maður reddar því sem hægt er og heldur svo bara áfram. Oft verða það einmitt hlutirnir sem fóru ekki alveg samkvæmt áætlun sem verða að skemmtilegustu sögunum seinna.“
Hver eru eftirminnilegustu jól sem þú hefur upplifað?
„Ætli það séu ekki fyrstu jólin mín með Snæbirni. Við vorum þá bara búin að vera að hittast í um tvo mánuði og hann gaf mér fallegt hálsmen frá Fríðu Design. Ég man að ég hugsaði með mér að þessi maður væri nú líklega framtíðarmaðurinn, hann var strax búinn að átta sig nákvæmlega á því hvaða týpa ég væri! Það reyndist svo ágætis tilfinning hjá mér.“
Finnst þér jólin verða betri eða flóknari með aldrinum?
„Betri, en ég hef reyndar alltaf elskað jólin. Mér finnst reyndar lífið almennt bara verða betra og betra með aldrinum. Maður þekkir sjálfan sig betur, veit hvað skiptir mann raunverulega máli og finnur kannski minna fyrir pressunni um hvernig hlutirnir „eiga“ að vera. Sem barn upplifði maður bara hvað jólin voru dásamleg án þess að velta mikið fyrir sér allri vinnunni, hugsuninni og ástinni sem lá að baki. Í dag kann ég enn betur að meta hvað foreldrar mínir lögðu mikið upp úr því að skapa fyrir okkur falleg og eftirminnileg jól.“
Hvað hefur lífið kennt þér um væntingarnar sem við gerum til „fullkominna jóla“?
„Kannski að maður þurfi ekki alltaf að gera meira, vera meira eða komast hraðar yfir allt. Það má líka bara stoppa og njóta. Jólin þurfa ekki að vera fullkomin og maður sjálfur þarf ekki að vera það heldur. Stundum er nóg að vera til staðar, gefa fólkinu sínu tíma og leyfa sér að hvíla sig. Ég held að það séu oft einmitt einföldustu augnablikin sem maður man eftir.“
Ef þú gætir farið aftur í tímann og upplifað ein jól úr fortíðinni, hvaða jól yrðu það?
„Ég veit ekki hvort ég myndi velja nein ein jól, mér finnst ég hafa verið ótrúlega heppin með jólin í gegnum tíðina. Við höfum haldið klassísk íslensk fjölskyldujól, eytt jólunum erlendis, verið í sólinni í Flórída í Bandaríkjunum og á skíðum á Ítalíu, og mér hefur þótt allt jafn dásamlegt á sinn hátt. Kannski er ég bara meira fyrir að hlakka til næstu jóla en að fara aftur í þau sem eru liðin. Ég er almennt alltaf mjög spennt fyrir lífinu og því sem er fram undan. Mér finnst það jákvætt viðhorf, að geta verið þakklát fyrir það sem maður hefur upplifað og varðveita góðar minningar, en vera á sama tíma full tilhlökkunar yfir því sem maður á enn eftir að upplifa.“
Snæbjörn Valur Ólafsson, eiginmaður Diljár Helgadóttur, er hér með blómvönd í Lundúnum. Ljósmynd/Aðsend
Hraðaspurningar:
Rauð jól eða hvít jól? Hvít.
Lifandi tré eða gervitré? Lifandi tré á Íslandi en gervitré í London.
Hamborgarhryggur eða rjúpa? Rjúpa. Hiklaust.
Heimagerðar gjafir eða eitthvað úr fallegum pakka? Eitthvað úr fallegum pakka.
Jólaboð eða kósýkvöld heima? Jólaboð. Ég er félagsvera.
Jólapeysa – já eða nei? Já, en alls ekki í jólaboði. Það eru takmörk!
Skipulögð jól eða smá jólaóreiða? Skipulögð jól. Ég prenta út matseðla og nafnspjöld. Ætli það svari ekki spurningunni.
Opna pakkana hægt og rólega eða rífa utan af? Rífa utan af! Maðurinn minn er algjör andstæða, hann opnar pakkana svo varlega að það liggur við að það sjáist ekki á jólapappírnum.
Gefa eða þiggja? Gefa. Sérstaklega þegar maður veit að maður hefur hitt alveg í mark.
Aðfangadagur eða jóladagur? Hvort tveggja, en á ólíkan hátt. Aðfangadagur fyrir hátíðleikann, jóladagur fyrir rólegheitin.
Hvað viltu helst finna undir jólatrénu í ár? Eitthvað sem kemur mér á óvart.
Og að lokum: Hvað eru fullkomin jól í þínum huga? Snæbjörn og litla pomeranian-tíkin mín Paris, fallegt umhverfi og góður matur.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/37/1693758.jpg)






