Mætir harðri gagnrýni fyrir að vera ólétt 59 ára

„Ég var kölluð eigingjörn, viðbjóðsleg og ógeðsleg. Ég fékk meira að segja skilaboð þar sem einhver sagðist vona að barnið mitt myndi deyja. Þet…

Renée Hoenderkamp hefur bent á að fáir geri athugasemdir við aldur eiginmanns hennar, sem er sjö árum eldri en hún. Skjáskot/Instagram

Breski læknirinn og sjónvarpskonan Renée Hoenderkamp hefur mátt þola harða gagnrýni eftir að hún greindi frá því á dögunum að hún ætti von á barni, 59 ára að aldri.

Hoenderkamp ræddi viðbrögðin í breska morgunþættinum This Morning á dögunum og sagðist hafa þurft að kúpla sig frá umheiminum eftir að hafa fengið fjölda hatursfullra skilaboða. Hægt er að horfa á klippu úr þættinum hér neðst í fréttinni.

„Ég var kölluð eigingjörn, viðbjóðsleg og ógeðsleg. Ég fékk meira að segja skilaboð þar sem einhver sagðist vona að barnið mitt myndi deyja. Þetta er hræðilegt,“ sagði hún.

Hoenderkamp benti á að fólkið á bak við skilaboðin þekkti hana ekki heldur dæmdi hana eingöngu út frá aldri hennar. Þá væru viðbrögð fólks sem hún hitti augliti til auglitis allt önnur.

Fór að efast um ákvörðun sína

Gagnrýnin fékk svo á Hoenderkamp að hún spurði eiginmann sinn, hinn 66 ára gamla hryggskurðlækni Colin Natali, hvort þau hefðu tekið ranga ákvörðun.

Hann minnti hana á að enginn vissi hvað framtíðin bæri í skauti sér og að barnið myndi alast upp við mikla ást. Þá væru þau í góðri fjárhagsstöðu og framtíð barnsins tryggð ef eitthvað kæmi fyrir þau.

Hoenderkamp hefur jafnframt vakið athygli á því hversu ólíkt samfélagið lítur á barneignir karla og kvenna á efri árum. Þrátt fyrir að eiginmaður hennar sé sjö árum eldri en hún hafi nánast enginn gert athugasemdir við aldur hans.

Býr yfir meiri visku og þolinmæði

Hoenderkamp á fyrir 37 ára son og átta ára dóttur en á nú von á annarri stúlku.

Í aðsendri grein sem birtist í Daily Mail sagðist hún sár yfir því að vera sökuð um eigingirni fyrir að vilja eignast barn sem væri svo innilega þráð.

„Þegar ég var 21 árs hafði ég æskuna með mér en mun minni skilning á því hvers móðurhlutverkið krafðist af mér. Nú, tæpum fjórum áratugum síðar, á ég færri ár fram undan en bý yfir meiri visku, þolinmæði og frelsi til að njóta hverrar stundar,“ skrifaði hún.

Hún sagði dóttur sína væntanlega í heiminn umvafða fólki sem elskaði hana nú þegar og spurði hvort það væri ekki einmitt tilefni til að fagna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读