Bara refurinn sér mig á Adamsklæðunum

„Þetta var rosalega gaman og gefandi og ekki spillir fyrir þegar húsið hefur svona mikið tilfinningalegt gildi,“ segir Tómas Guðbjartsson hjarta…

Húsið í Andahvilft eftir að framkvæmdum var lokið.

Húsið í Andahvilft eftir að framkvæmdum var lokið. Ljósmynd/Tómas Guðbjartsson

„Þetta var rosalega gaman og gefandi og ekki spillir fyrir þegar húsið hefur svona mikið tilfinningalegt gildi,“ segir Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir sem gert hefur upp og fært til gamalt timburhús í Hvestufirði, þar sem faðir hans fæddist. 

Árið 1918 festu amma og afi Tómasar Guðbjartssonar, Kristófer Kristófersson og Ingibjörg Gestsdóttir, kaup á vönduðu og fallegu timburhúsi í Fremri-Hvestu í Hvestudal. Húsið hafði verið flutt inn frá Noregi í lok 19. aldar. Þar fæddist faðir hans, Guðbjartur Kristófersson, árið 1941 og bjó fyrstu árin. Síðar bjó Bjarni föðurbróðir Tómasar í húsinu ásamt eiginkonu sinni og 15 börnum uns nýtt og stærra íbúðarhús kom til sögunnar 1975, en þá fluttu í húsið sonur Bjarna, Jón í Hvestu, og kona hans, Halla Hjartardóttir.

Svona leit húsið út áður en framkvæmdir hófust.

Svona leit húsið út áður en framkvæmdir hófust. Ljósmynd/Tómas Guðbjartsson

Tómas rifjar í nýrri bók sinni, Gamli bærinn í Hvestu, nú í Andahvilft, upp skemmtilega sögu af fyrstu heimsókn sinni í húsið þegar hann var sex ára gamall. Hákon, bróðir hans, var þá fimm ára og þegar þeir bræður voru leiddir inn í borðstofuna blasti við þeim glaðlegur hópur barna hjónanna. Þeir höfðu aldrei séð svona mörg börn samankomin í einu herbergi og Hákoni varð svo mikið um þetta að hann hljóp út úr húsinu og lengst út á tún. Hann jafnaði sig þó fljótt, kappinn.

Með árunum lét gamli bærinn verulega á sjá og veturinn 2017 varð að samkomulagi að Tómas og eiginkona hans, Dagný Heiðdal, myndu færa húsið tveggja km leið út í Andahvilft og gera það upp á sem upprunalegastan hátt, en á nýjum steyptum grunni. Sú vinna tók rúm fimm ár.

Tómas segir sér hafa verið ljúft og skylt að ganga í verkið enda séu honum bæði húsið og staðurinn afar kær. Eftir að verkinu lauk hefur hann raunar verið skráður til heimilis fyrir vestan. „Það er til þess að losna undan því að vera kallaður SAS – sérfræðingur að sunnan,“ segir hann léttur í bragði. „Það eina sem ég var spurður um af sveitarfélaginu var hvort ég þyrfti á barnaheimili eða öldrunarþjónustu að halda og þegar svarið var nei var ég samstundis boðinn velkominn í Vesturbyggð.“

Tómas Guðbjartsson við skiltið með Andahvilft.

Tómas Guðbjartsson við skiltið með Andahvilft.

Um heilsárshús er að ræða, með varmadælu, og upphitunarkostnaður er lítill. Tómas og Dagný létu líka setja upp heitan pott og útisturtu. „Á meðan við erum í sturtu horfum við upp í Hvilftina og það er bara refurinn sem sér okkur á Adams- og Evuklæðunum,“ segir Tómas glettinn.

Nánar er fjallað um framkvæmdirnar í máli og myndum í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读