Vara við aðstæðum á Reykjanesbraut
Varað hefur verið við því að erfitt geti reynst að aka um Reykjanesbraut og fleiri vegi sökum veðurs.
Í tilkynningu Lögreglunnar á Suðurnesjum er varað við því að akstur um Reykjanesbraut, sem og aðra vegi, geti verið krefjandi við „þær aðstæður sem nú eru uppi“.
Halda góðu bili á milli bíla
Slydda og krapi á akbrautum geti valdið því að bifreiðar leiti í fyrirliggjandi hjólför og fylgi því annarri akstursstefnu en þeirri sem ökumaður ætlar sér.
„Höldum góðu bili á milli ökutækja og hægjum á okkur. Munum að ökuhraða skal ávallt miða við aðstæður,“ segir einnig í tilkynningunni.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗