Jólastemning á fyrsta í aðventu
Mikið líf og fjör var á Aðventuhátíð Kópavogs sem fram fór í dag. Boðið var upp á fjölda atriða, jólatré var tendrað og loks var slegið upp jóla…
Jólastemningin var allsráðandi víða um land í dag, á sjálfu aðventukvöldinu, þegar ljósin voru tendruð á jólatrjám við hátíðlegar athafnir. Jólatónlist, dans og heimsóknir jólasveina voru meðal þess sem gladdi yngstu kynslóðina.
Mikið líf og fjör var á aðventuhátíð Kópavogs þar sem fjölbreytt dagskrá fór fram í menningarhúsum bæjarins frá því klukkan hálf þrjú í dag.
Gestum gafst meðal annars kostur á að sækja tónleika, taka þátt í jólaverkstæðum og gæða sér á heitu kakói.
Dansað í kringum jólatréð
Í Salnum var opnuð sýning á jólaljósaverkum barna í Vatnsendaskóla og í Náttúrufræðistofu Kópavogs var opnuð sýning á steinasafni Sigga. Í Gerðarsafni og Bókasafni Kópavogs var einnig boðið upp á tónleika og fjölbreyttar smiðjur.
Útiskemmtun hófst klukkan 16.20 með tónlistarflutningi áður en Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri tendraði ljósin á jólatré bæjarins.
Að því loknu var slegið upp jólaballi þar sem jólasveinar létu sig ekki vanta.
Jólasveinar sigldu til hafnar
Í Reykjavík var komið að hinni árlegu tendrun jólaljósanna á Hamborgartrénu á Miðbakka Gömlu hafnarinnar klukkan 17.
Samkvæmt dagskrá hátíðarinnar skyldi Clarissa Duvigneau, sendiherra Þýskalands á Íslandi, tendra ljósin undir jólaleik Lúðrasveitar Hafnarfjarðar.
Jólasveinarnir áttu að koma sjóleiðis til hátíðarinnar um borð í Magna og að athöfn lokinni var gestum boðið að gæða sér á fiskisúpu í húsakynnum Landsbankans við Reykjastræti.
Sú hefð að tendra ljósin á Hamborgartrénu á rætur að rekja til ársins 1965 þegar hafnaryfirvöld í Hamborg hófu að senda jólatré til Reykjavíkur í þakklætisskyni fyrir góðvild íslenskra sjómanna í garð þýskra barna á árunum eftir síðari heimsstyrjöld.
Tréð í ár er þrettán metra hátt og kemur úr Bakkakotsskógi í Skorradal.
Jólastemning fyrir vestan
Aðventunnar var einnig fagnað fyrir vestan en ljósin á jólatrénu á Silfurtorgi á Ísafirði voru tendruð síðdegis í dag.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


