Netanjahú segist tilbúinn að víkja tímabundið

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, kveðst reiðubúinn að víkja tímabundið úr embætti verði mynduð þjóðstjórn undir forystu Gadis Eisen…

Staða Benjamíns Netanjahús hefur veikst.

Staða Benjamíns Netanjahús hefur veikst. AFP

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, kveðst reiðubúinn að víkja tímabundið úr embætti verði mynduð þjóðstjórn undir forystu Gadis Eisenkots, fyrrverandi yfirmanns Ísraelshers.

Netanjahú lagði í dag til að þeir Eisenkot skiptust á að gegna embætti forsætisráðherra og að Eisenkot gegndi embættinu á fyrri hluta kjörtímabilsins.

Útspilið kemur á sama tíma og Eisenkot vinnur að myndun ríkisstjórnar sem gæti bundið enda á valdatíð Netanjahús.

Segir öryggi ríkisins í húfi

Netanjahú segir í yfirlýsingu að eðlilegt væri að hann leiddi þjóðstjórnina í ljósi þess að Likud-flokkur hans hlaut flest þingsæti í kosningunum í síðasta mánuði.

Hann kveðst hins vegar reiðubúinn að víkja þeirri meginreglu til hliðar vegna þeirra alvarlegu ógna sem steðji að Ísrael.

Netanjahú kallar jafnframt eftir því að viðræður um myndun þjóðstjórnar hefjist þegar í stað.

Tilbúinn til viðræðna

Eisenkot hefur lýst sig reiðubúinn til að kanna á næsta sólarhring hvort alvara liggi að baki tilboði Netanjahús. Hefur hann boðið forsætisráðherranum til viðræðna um stefnumál og grundvöll mögulegs stjórnarsamstarfs.

Hvorug stjórnmálabandalaganna sem þeir Netanjahú og Eisenkot leiða hlaut meirihluta á ísraelska þinginu í kosningunum 27. október.

Í kjölfar kosninganna fól Ísak Herzog, forseti Ísraels, Eisenkot að mynda ríkisstjórn. Hefur hann frest til 6. desember til þess að ljúka stjórnarmyndunarviðræðum.

Eisenkot hefur á undanförnum dögum náð samkomulagi um stjórnarsamstarf við flokka bæði til hægri og vinstri í ísraelskum stjórnmálum.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读