Framtíðarsýn úr piparkökum
Með fjölbreyttu og hátíðlegu úrvali piparkökuverka, allt frá vélmennum skreyttum sykurkremi til sviðsmynda um heimsendi og innrásir geimvera, gefur árleg piparkökuhúsakeppni í Stokkhólmi innsýn í það sem framtíðin kann að bera í skauti sér.
Sýningin er nú haldin í 36. sinn í sænska arkitektúrsafninu ArkDes. Þar má sjá 161 piparkökuverk sem öll taka mið af þemanu „Framtíðin“.
Verkin spanna allt frá bjartsýnum framtíðarsýnum til uggvænlegra sviðsmynda.
„Við veljum oft þemu sem endurspegla það sem er að gerast í heiminum,“ segir Elisabet Norin, umsjónarmaður sýningarinnar.
„Þetta er skemmtileg og aðgengileg leið til að skoða arkitektúr, hönnun og byggingar með því að skapa eitthvað sem bæði er leikandi og hægt er að borða.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗