Telja sig geta haldið í framherjann - PSG og Arsenal hafa áhuga

Forráðamenn Atlético Madríd eru bjartsýnir á að félaginu takist að halda í argentínska framherjann Julian Alvarez þrátt fyrir áhuga stórliða í Evrópu.

Frá þessu greinir Teamtalk en bæði Arsenal og franska stórveldið Paris Saint-Germain hafa áhuga á að fá leikmanninn í sínar raðir.

Alvarez, sem er 26 ára gamall, gekk til liðs við Atlético frá Manchester City sumarið 2024 og er samningsbundinn spænska félaginu til ársins 2030.

Argentínski landsliðsmaðurinn er í lykilhlutverki í liði Diego Simeone og hafa forráðamenn Atlético lítinn áhuga á að missa hann.

Alvarez þekkir vel til í enska boltanum eftir tveggja ára dvöl sína hjá Manchester City.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「DV.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读