Fékk að heyra það eftir að hafa sent samúðarkveðjur vegna hinna látnu á Jökli
Paul Watson sem barist hefur gegn hvalveiðum Íslendinga áratugum sáman og eldað grátt silfur við t.d.
Ritstjórn DV
Laugardaginn 28. nóvember 2026 15:10
Paul Watson. Mynd: Skjáskot/Youtube.
Paul Watson sem barist hefur gegn hvalveiðum Íslendinga áratugum sáman og eldað grátt silfur við t.d. Kristján Loftsson og Landhelgisgæsluna fékk ekki góð viðbrögð, frá sumum Íslendingum, þegar hann sendi samúðarkveðjur til fjölskyldna þriggja áhafnarmeðlima Jökuls, sem létust þegar skipið sökk á miðvikudagskvöld. Láta sumir vægast sagt þung orð falla í garð Watson. Segist Watson forviða á viðtökunum og leggur áherslu á að þótt menn deili á sjónum þá séu þar mannslíf alltaf í fyrirrúmi. Hann hefur viðurkennt að það hafi verið mistök að birta gervigreindarmynd af björgunaraðgerðum Landhelgisgæslunnar en hefur þó ekki fjarlægt myndina.
Í færslu á Facebook birti Watson umrædda mynd og sendi samúðarkveðjur í eigin nafni, nafni stofnunarinnar sem kennd er við hann og skipverja á Bandero, en eins og kunnugt er tók Landhelgisgæslan skipið yfir fyrr á þessu ári þegar skipverjar reyndu að koma í veg fyrir hvalveiðar á vegum Hvals hf. Var samúðarkveðjunum raunar beint að fjölskyldum allra í áhöfn Jökuls. Hrósaði Watson Landhelgisgæslunni fyrir að bjarga 14 af 17 áhafnarmeðlimum og sagði að þegar hörmungar riðu yfir á sjó þá væru allir sjómenn félagar.
Óvinur
Ummælin við færsluna eru fjölmörg og ekki öll fjandsamleg. Sumir taka undir samúðarkveðjurnar og hrósa Watson fyrir þær og einhverjar Íslendingar eru í þeim hópi. Fjandskapurinn af hálfu annarra Íslendinga er hins vegar töluverður en meðal ummæla má t.d. nefna:
„Þú ert óvinur okkar og við viljum ekki þitt álit.“ Kallar viðkomandi Watson hryðjuverkamann og raunar nota fleiri og þá ekki eingöngu Íslendingar einnig það orð. Fullyrðir viðkomandi að Watson hafi með aðgerðum sínum skaðað íslenskt efnhagslíf og íslenska sjómenn. Watson svarar viðkomandi og segir hvalveiðar ekki skila íslensku efnahagslífi neinu.
Meðal annarra ummæla af þessu tagi má t.d. nefna:
„Þú og þín hryðjuverkasveit eruð ekki sjómenn. Þið eruð glæpamenn sem hatið alvöru sjómenn.“
„Þú ert að reyna að afla þér samúðar á grundvelli harmleiks annarra ... Þú ættir að skammast þín.“
„Hættu að reyna að afla þér fylgis vegna okkar sorgar, skítseiðið þitt.“
Hatur
Í athugasemd við sína eigin færslu segist Watson furða sig á að svo margar athugasemdir við færsluna séu fjandsamlegar í hans garð. Hann segist ekki hafa átt von á slíkum viðbrögðum. Sama hvert verkefni viðkomandi sé þá séu skipsskaðar með manntjóni alltaf hryllilegir fyrir alla sjómenn. Segist hann sjálfur hafa komið að því að bjarga mannslífum á sjó og að með ummælum af þessu tagi sverti viðkomandi minningu þeirra sem létust.
Þó nokkrir gagnrýna harðlega gervigreindarmyndina sem Watson birtir með færslunni. Bent er á að hún sýni ekki raunsanna mynd af björgunaraðgerðum, en á myndinni má sjá bæði Jökul og þyrlu Landhelgisgæslunnar, en eins og kunnugt er sökk skipið áður en þyrlan komst á staðinn.
Bendir Íslendingur Watson á að það að birta tilbúna mynd með færslunni bendi ekki til þess að mikil einlægni eða alvara liggi að baki samúðarkveðjunum.
Í annari athugasemd viðurkennir Watson að birting myndar sem búin er til af gervigreind hafi verið mistök af hans hálfu en leggur áherslu á að samúðarkveðjurnar hafi verið settar fram í fullri einlægni. Á myndinni megi sjá hetjudáð áhafnar þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Watson virðist þó ekki á þeim buxunum að fjarlægja myndina en þegar þessi orð eru rituð hefur hann ekki látið verða af því.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗