Unglingar taka krabbameinslyf til að verða hærri – Mjög hættulegt
Útlitsdýrkun virðist vera að sækja í sig veðrið hjá ungu fólki og eitt af því sem sumir unglingar hafa tekið upp á er að taka krabbameinslyfið erdafitinib í þeirri trú að það hjálpi þeim að verða hærri. Það eru aðallega strákar sem gera þetta.
Metro skýrir frá þessu og segir að fréttir hafi borist af því að unglingar, aðallega strákar, séu byrjaðir að taka erdafitinib í von um að verða hærri. Þetta er sagt vera algengt umræðuefni í spjallhópum, sem helga sig umræðu um líftækni og að bæta sjálfan sig, á Internetinu. Einn notandi kallaði lyfið „hæðarbjargvætt“.
Í umfjöllun tímaritsins Rolling Stone um þetta var rætt við 17 ára strák frá New York. Hann sagðist hafa notað lyfið öðru hvoru í tvö ár og hafi svo sannarlega fundið fyrir aukaverkunum, þar á meðal liðaverkjum, ítrekuðum blóðnösum og gríðarlega þurri húð.
Jafnaldri hans sagði að neglurnar hefðu dottið af honum þegar hann hafði notað lyfið í tvo mánuði ásamt ýmsum öðrum efnum sem eiga að hjálpa fólki að hækka.
Erdafitinib, einnig þekkt sem Balvesa, er löglegt lyf í Bretlandi og er notað gegn ákveðnum tegundum krabbameins í blöðru og þvagfærum.
Framleiðandi lyfsins, Johnson & Johnson, segir að lyfið hafi ekki hlotið samþykki sem hæðaraukandi lyf.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗