Sérfræðingur með alvarlega spá – Svona lýkur stríðinu í Úkraínu
Nú eru tæp fimm ár síðan Rússar réðust inn í Úkraínu en þar á undan höfðu þeir árum saman stutt við bakið á svokölluðum aðskilnaðarsinnum í aust…
Pressan
Laugardaginn 28. nóvember 2026 19:00
Hermaður nálægt víglínunni í Úkraínu. Mynd/Getty
Nú eru tæp fimm ár síðan Rússar réðust inn í Úkraínu en þar á undan höfðu þeir árum saman stutt við bakið á svokölluðum aðskilnaðarsinnum í austurhluta landsins og lagt Krím undir sig.
Umræðan um hvenær þessu hræðilega stríði muni ljúka verður sífellt fyrirferðarmeiri. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir annarra þjóða til að fá Rússa og Úkraínumenn til að setjast að samningaborðinu og semja um frið, þá er ekkert sem bendir til þess að friður sé nærri.
Peter Viggo Jakobsen, lektor við danska varnarmálaskólann, sagði í samtali við TV2 að hann sjá ekkert sem bendir til að ríkin tvö færist nær því að semja um frið, þvert á móti standi þau bæði föst á sínu. „Það er ekkert sem bendir til að annar hvor aðilinn hafi í hyggju að gefa eftir,“ sagði hann.
Hann sagði heldur enga ástæðu til að ætla að tilraunir annarra ríkja, aðallega Bandaríkjanna, til að koma á friði beri árangur.
Þrátt fyrir að enn sé talað um að það sé mögulegt að koma á friði, þá telur Jakobsen að væntingar um frið á næstunni séu óraunhæfar. Hann gagnrýndi einnig Donald Trump fyrir endurtekin ummæli hans um að stríðinu geti jafnvel lokið fljótlega. „Það er að ljúga að fólki ef maður segir að stríðinu ljúki fljótlega eins og Donald Trump gerir í hvert sinn sem hljóðnemi er réttur að honum,“ sagði Jakobsen.
Hans eigin spá er mun dekkri. Hann telur að á einhverjum tímapunkti muni stríðið enda sem frosin átök meðfram núverandi víglínu. Það geti falið í sér að umfangsmiklum átökum ljúki án þess að samið verði um frið.
Hann líkti þessu við endalok Kóreustríðsins en þar hættu átökin með gerð vopnahléssamnings 1953 en aldrei hefur verið gerður formlegur friðarsamningur.
Jakobsen sagðist telja að svipað geti orðið uppi á teningnum í Úkraínu.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗