Pochettino hefur áhuga á að kaupa fjölhæfan leikmann
Manchester United hefur áhuga á að fá úrúgvæska landsliðsmanninn Maxi Araujo frá portúgalska félaginu Sporting í janúar.
Frá þessu greinir Sport Witness en leikmaðurinn er sagður mjög spenntur fyrir því að færa sig yfir í ensku úrvalsdeildina.
Araujo, sem er 26 ára gamall, getur bæði leikið sem vinstri bakvörður og kantmaður.
Samkvæmt frétt Sport Witness gæti tilboð upp á 50-60 milljónir evra sannfært forráðamenn Sporting um að selja leikmanninn þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.
Mauricio Pochettino gæti því fengið liðsstyrk á vinstri vænginn en ljóst er að United þyrfti að reiða fram umtalsverða fjárhæð til að landa Araujo.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗