Birti fyrstu myndirnar af litlu fjölskyldunni

Leiðin að móðurhlutverkinu var þyrnum stráð.

Lena Dunham á viðburði árið 2020 en leikkonan fagnaði nýverið langþráðu móðurhlutverki. AFP

Bandaríska leikkonan og handritshöfundurinn Lena Dunham, sem er 40 ára, deildi nýverið í fyrsta sinn fjölskyldumyndum af sér, eiginmanni sínum, tónlistarmanninum Luis Felber, og nýfæddri dóttur þeirra.

Dunham, sem er hvað þekktust fyrir sjónvarpsþættina Girls, kom aðdáendum sínum á óvart í september þegar hún greindi frá því að hjónin hefðu eignast sitt fyrsta barn með aðstoð staðgöngumóður.

Leikkonan kvaðst þakklát í færslunni á Instagram, þar sem hún birti meðal annars myndir úr gönguferð með fjölskyldunni.

Dreymdi alltaf um að verða móðir

Dunham gekkst undir legnám eftir að hafa glímt við mikla verki af völdum legslímuflakks um árabil. Hún hefur verið opinská um sorgina sem fylgdi því að geta ekki gengið sjálf með barn.

„Það dreymir ekki alla um að verða foreldrar en mig dreymdi um að verða móðir. Sú tilhugsun að ég myndi einn daginn ganga með barn var stór hluti af sjálfsmynd minni,“ sagði hún í viðtali við fjölmiðla vestanhafs í apríl.

Hún sagðist með tímanum hafa kynnst fólki sem hefði stofnað fjölskyldur með margvíslegum hætti og öðlast nýja sýn á móðurhlutverkið.

Dunham og Felber kynntust í kórónuveirufaraldrinum og fóru í gönguferð meðfram ánni Thames í London á fyrsta stefnumóti sínu. Þau opinberuðu samband sitt vorið 2021.

Daily Mail

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Fólkið - Fólk」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读