88 ára og ástfanginn af ungu eiginkonu sinni
Leikarinn Christopher Lloyd er 88 ára og yfir sig ástfangin af eiginkonu sinni, Lisu Lloyd. Hann fangaði nýverið tíu ára brúðkaupi og skellti í færslu á Instagram eins og unga fólkið.
„Til hamingju með brúðkaupsafmælið,“ skrifaði leikarinn á Instagram og sagðist jafnframt elska eiginkonu sína. Lloyd er þekktur fyrir leik sinn í Back to the Future-trílógíunni og The Addams Family.
Lisa Lloyd er fyrrverandi fasteignasali og er fimmta eiginkona leikarans. Í byrjun nóvember fjallaði People um hjónaband þeirra. Töluverður aldursmunur er á hjónunum en leikarinn er 88 ára á meðan Lisa Lloyd er aðeins 56 ára. Þau kynntust árið 2005 og gengu í hjónaband árið 2016. Frú Lloyd segir þau vera mjög ólík.
Hún segir hann til dæmis ekki hanga á netinu. „Hann les allan liðlangan daginn,“ sagði hún í viðtalinu. „Ég hef verið með honum í næstum 22 ár. Hausinn á mér er fullur af alls kyns vitleysu sem maður sér á netinu. Ég fylgist með því hvað hann getur verið íhugull og yfirvegaður, og ég hef alltaf verið ofvirkari og opnari en hann,“ sagði eiginkona leikarans.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗