Spears réttir fjölskyldunni sáttarhönd
Bandaríska söngkonan Britney Spears heldur upp á þakkargjörðarhátíðina með fjölskyldu sinni í Louisiana.
Fáeinir dagar eru síðan hún bað fjölskylduna afsökunar á að hafa rifjað upp gömul ágreiningsmál.
Að sögn Page Six eru báðir synir Spears, Sean Preston og Jayden James, með henni á hátíðinni. Systir hennar, Jamie Lynn Spears, er þar með eiginmanni sínum, Jamie Watson, og dætrunum Maddie og Ivey.
Söngkonan er einnig sögð hafa hitt foreldra sína, Jamie og Lynne Spears.
Stirð samskipti um árabil
Í október sagðist Spears enn finna til biturðar vegna sjálfræðissviptingarinnar sem stóð í 13 ár og lauk árið 2021.
Fyrr í þessum mánuði gagnrýndi hún Jamie Lynn á Instagram, eins og mbl.is hefur áður greint frá. Spears sagðist aldrei hafa fengið að halda á Ivey þegar hún heimsótti fjölskylduna í kórónuveirufaraldrinum.
„Ég er svo lánsöm að eiga svona yndislega fjölskyldu,“ skrifaði Spears í færslunni um helgina, sem hún hefur síðan eytt. Þar sagðist hún aldrei hafa rætt þessi mál augliti til auglitis við fjölskyldu sína.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗