Brjáluð eftir að besta vinkona byrjaði með fyrrverandi

Joan Smalls, Tom Brady og Candice Swanepoel eiga í flóknum ástarþríhyrningi. Samsett mynd

Victoria's Secret-fyrirsæturnar Joan Smalls og Candice Swanepoel voru fyrir nokkrum mánuðum bestu vinkonur. Nú hefur Smalls slitið öllum samskiptum við vinkonu sína eftir að Swaneopel byrjaði með fyrrverandi kærasta hennar, ruðningskappanum Tom Brady. 

Fyrirsæturnar voru það góðar vinkonur fyrir ósættið að Smalls deildi vandamálum sínum í sambandinu með Swaneopel og þær íhuguðu jafnvel að kaupa sér sumarhús saman. Orðrómur um vinslit vinkvennanna fór á kreik eftir að þær voru ekki myndaðar saman á tískusýningu Victoria's Secret í ár. Smalls lét einnig ummæli falla á samfélagsmiðlum um óheiðarleika og svik sem hún fór nánar út í þegar hún kom fram í hlaðvarpi að því fram kemur á vef People. 

Fyrirsætan Joan Smalls er reið út í fyrrverandi bestu vinkonu sína. AFP

„Ég er ekki vinkona svikara“

Fólk varð forvitið þegar Smalls fjarlægði allar myndir af Swanepoel á Instagram og hætti að fylgja fyrrverandi vinkonu sinni. Smalls ákvað því að greina sjálf frá því hvað hafði gerst. „Ég er ekki vinkona svikara,“ sagði Smalls. 

Smalls staðfesti að vinslitin við Swanepoel hefðu átt sér stað í apríl síðastliðnum. „Ég vissi ekki hversu mikla athygli þetta myndi vekja en ég vissi fyrir víst að fólk myndi taka eftir þessu,“ sagði hún um málið. Hún viðurkenndi einnig að vinasvikin snérust um Tom Brady, hún nefndi hann ekki á nafn sjálf en talaði um hann sem „þennan mann“. „Ég var að hitta þennan mann í átta mánuði. Netið lýsti þessu sem óformlegu ástarsambandi. 

Fyrirsætan Candice Swanepoel féll fyrir Tom Brady rétt eftir að besta vinkona hennar var með honum. Samsett mynd

Átti náin samtöl við vinkonu sína um ástarsambönd

Smalls sagði að vinátta þeirra hafi staðið í 15 ár og hún hafi berskjaldað sig og átt mörg náin samtöl við vinkonu sína meðal annars um mennina sem hún hafi verið með. Smalls bætti við að þremur mánuðum eftir að hún hætti að hitta Brady hafi hún fengið skilaboð frá vinkonu sinni. 

„Við höfðum aldrei staðið á slíkum krossgötum að við höfðum þurft að eiga svona alvarlegt samtal og eina samtalið sem kom til greina var um karlmann, nánar tiltekið mann sem ég hafði nýlega verið að hitta,“ sagði Smalls.

Joan Smalls segir farir sínar ekki sléttar.

Joan Smalls segir farir sínar ekki sléttar. AFP

Gerði lítið úr upplifun vinkonu sinnar

Swanepoel baðst afsökunar en ákvað samt að hitta Brady. 

„Mér fannst hún vera að réttlæta gjörðir sínar, eins og það sem ég átti hefði ekki verið raunverulegt eða bara eitthvað hversdagslegt. Hún fór að gera lítið úr minni upplifun til að láta sjálfri sér líða betur,“ sagði Smalls og sagði það gera hana reiða. „Ég veit ekki hvað hún sá sem henni fannst réttlæta þessa fórn,“ sagði Smalls um vinskapinn og þá ákvörðun að hefja ástarsamband við Brady. „Ég vona að hún fái það sem hún vill og að þetta hafi verið þess virði.“

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab