Þarf að greiða fyrrverandi tæpar 450 milljónir
Leikkonan Jessica Alba þarf samtals að greiða fyrrverandi eiginmanni sínum, kvikmyndaframleiðandanum Cash Warren, tæpar 3,6 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði um 449 milljóna króna, eftir skilnað þeirra.
Stærstur hluti fjárhæðarinnar var ákveðinn þegar þau gengu frá skilnaðinum í febrúar. Nú liggur fyrir að Warren fær einnig hluta af eftirlaunasparnaði Ölbu.
Samkvæmt skilnaðarsamkomulagi þeirra átti Alba að greiða Warren þrjár milljónir bandaríkjadala í tvennu lagi til að jafna hlut þeirra við eignaskiptin. Samkvæmt heimildum fjölmiðla vestanhafs gerðu þau engan kaupmála.
Við þá upphæð bætast nú 577.481 bandaríkjadalur af eftirlaunasparnaði Ölbu hjá fyrirtæki hennar, HonorBar. Samkvæmt dómsskjölum sem Page Six hefur undir höndum getur sú fjárhæð hækkað eða lækkað eftir því hvernig sparnaðurinn ávaxtast fram að greiðsludegi.
Cash Warren og Jessica Alba á verðlaunahátíð árið 2013. Nú þarf hún að greiða honum tæpar 450 milljónir króna eftir skilnaðinn. AFP/Jason Kempin
Alba og Warren slitu samvistum í desember 2024 eftir 16 ára hjónaband. Þau fara sameiginlega með forsjá barna sinna þriggja, dætranna Honor og Haven og sonarins Hayes.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/51/1695163.jpg)
