Gæti hugsað sér að giftast til málamynda

Khloé Kardashian hefur verið einhleyp frá því að hún og Tristan Thompson slitu samvistir árið 2022.

Khloé Kardashian gæti hugsað sér að giftast til málamynda ef eiginmaðurinn sæi til þess að hún liti vel út á hverjum degi. Skjáskot/Instagram

„Þig vantar mann. Systur þínar eru allar að hitta einhvern,“ sagði áhrifavaldurinn Colt Paulsen við Khloé Kardashian í nýjasta þætti The Kardashians.

Þau voru í kynningarhófi fyrir nýtt ilmvatn hennar í Malibu þegar hann bauðst sjálfur til að giftast henni til málamynda.

„Það væri ég til í hvenær sem er,“ svaraði Kardashian.

Paulsen hafði í huga það sem á ensku kallast lavender marriage, hagsmunahjónaband karls og konu þar sem annað þeirra eða bæði eru hinsegin.

Þegar Kardashian ræddi hugmyndina nánar sagðist hún stundum spyrja sig hvort hún vildi sjá um enn eina manneskjuna. Það færi eftir því hvað maðurinn gæti gert fyrir hana.

„Ætlarðu að sjá til þess að ég líti vel út á hverjum degi? Þá er ég til. Meira þarf ekki,“ sagði hún.

Kardashian á átta ára dóttur, True, og fjögurra ára son, Tatum, með körfuboltamanninum Tristan Thompson. Í hlaðvarpi sínu Khloé in Wonder Land sagði hún fyrr í mánuðinum að hún hefði kosið að vera einhleyp frá því að Tatum fæddist. „Mér finnst yndislegt að geta verið svona mikið til staðar fyrir börnin mín.“

People

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab