„Af hverju ertu aldrei í buxum?“

Þetta vildi sjö ára sonur Jennifer Lopez vita eftir sýningu hennar í Las Vegas.

Jennifer Lopez á viðburði árið 2022.

Jennifer Lopez á viðburði árið 2022. AFP/Valerie Macon

Jennifer Lopez átti von á hrósi frá syni sínum þegar hann kom til hennar að lokinni frumsýningu í Las Vegas fyrir tíu árum. Það var þó allt annað sem lá Max á hjarta.

Lopez rifjaði atvikið upp í spjallþætti Drew Barrymore á dögunum. Tvíburarnir Max og Emme, sem hún á með fyrrverandi eiginmanni sínum, söngvaranum Marc Anthony, voru að verða átta ára þegar hún frumsýndi All I Have í janúar 2016.

Lopez sagðist hafa haldið að Max ætlaði að segja henni hvað sýningin hefði verið góð. Þess í stað spurði hann: „Af hverju ertu aldrei í buxum á sviðinu?“

Söngkonan hló þegar hún rifjaði þetta upp og sagðist skilja að honum hefði þótt það skrítið. Sjálf ætti hún einfalt svar:

„Ég er dansari, elskan mín. Ég er sýningarstúlka. Þetta er starfið mitt.“

Jennifer Lopez og tvíburarnir hennar, Max og Emme, á góðri stundu. Hún er að vonum stolt af afkvæmunum sem fengu inngöngu í alla háskólana fimm sem þau sóttu um. Skjáskot/Instagram

Tvíburarnir fluttir að heiman

Max og Emme eru nú átján ára og bæði farin í háskóla. Eins og mbl.is greindi frá á dögunum sagði Lopez í spjallþætti Jimmy Fallon að hún hefði grátið mánuðum saman áður en þau fluttu að heiman og fyrstu vikurnar á eftir.

Nú væri hún farin að kunna að meta frelsið sem fylgdi því að búa ein.

People

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab