Haaland byrjaður að íhuga að yfirgefa Manchester City í sumar
Erling Haaland, framherji Manchester City, er sagður íhuga að yfirgefa enska félagið næsta sumar.
Frá þessu greinir katalónski miðillinn El Nacional en Barcelona er sagt vera á meðal þeirra félaga sem Norðmaðurinn hefur mestan áhuga á að ganga til liðs við.
Haaland er samningsbundinn Manchester City til ársins 2034 en óvissan í kringum félagið vegna brota þess á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar gæti haft mikil áhrif á framtíð hans.
Verði City refsað með þungum stigafrádrætti gæti hinn 26 ára gamli framherji óskað eftir félagaskiptum.
Forráðamenn Barcelona hafa lengi haft augastað á Haaland og eru sagðir spenntir fyrir því að sameina krafta hans og Lamine Yamal í fremstu víglínu katalónska stórveldisins.
Ljóst er þó að Barcelona þyrfti að leggja fram gríðarlega háa fjárhæð til að landa Norðmanninum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗