Ryanair breytti reglum um sætisval án þess að skýra frá því

Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair hefur breytt reglum sínum varðandi sætisval farþega og gerði þetta mjög hljóðlega sem er óvenjulegt á þeim bæ því flugfélagið er duglegt við að láta vita af sér við minnstu tilefni.

Fram að þessu hafa farþegar, sem hafa ekki viljað greiða fyrir sæti, fengið sæti úthlutað þegar þeir innrita sig á netinu en það geta þeir gert allt að 72 klukkustundum fyrir brottför.

Samkvæmt frétt The Irish Times munu farþegar, sem vilja ekki greiða fyrir sæti, framvegis ekki fá að vita hvaða sæti þeir fá fyrr en nokkrum klukkustundum fyrir brottför.

Með gömlu reglunni gátu farþegarnir, ef þeir voru ósáttir við úthlutað sæti, keypt sér annað sæti. En nú fá þeir ekki að vita um sætisúthlutinina fyrr en þremur til fjórum klukkustundum fyrir brottför en ekki þegar þeir innrita sig á netinu.

Gagnrýnendur telja að breytingunni sé ætlað fá fleiri farþega til að greiða fyrir sæti en þessu hafnar Ryanair.

Talsmaður flugfélagsins sagði að margir farþegar hafi klagað yfir því í sumar að geta ekki bókað ákveðið sæti á ferðadeginum sjálfum því búið hafi verið að úthluta því ókeypis allt að 24 klukkustundum fyrir brottför og þess vegna hafi þessi breyting verið gerð.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「DV.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读