Gleymdu barninu sínu í flugvél – „Mjög svo óvenjuleg staða“

„Þetta var mjög svo óvenjuleg staða,“ sagði flugmaður hjá LATAM Airlines eftir að barn fannst eitt um borð í flugvél, sem hann hafði flogið, um 20 mínútum eftir lendingu í Porto Alegre í Brasilíu. Foreldrar barnsins höfðu gleymt því.

The Sun skýrir frá þessu og segir að flugmaðurinn hafi sagt flugumferðarstjóra að mjög óvenjuleg staða væri komin upp því fjölskylda ein væri farin frá borði en hefði gleymt barni, um sjö ára gömlu, í vélinni.

Flugumferðarstjórinn staðfesti þá að fjölskyldan biði eftir barninu í komusalnum og að búið væri að láta starfsfólk LATAM vita.

Fjölskyldan gat ekki farið aftur um borð í vélina því hún hafði yfirgefið svæðið sem veitir aðgang að flugvélum.

Ekki hafa fengist neinar upplýsingar um af hverju fjölskyldan gleymdi barninu.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「DV.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读