Hrinda af stað verkefni með sjálfsvígsforvarnir til að hjálpa karlmönnum að tala

Manchester United hrindir af stað nýju verkefni í tengslum við geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir þegar liðið tekur á móti Brentford á Old Trafford á morgun.

Verkefnið ber heitið The Check-In og er unnið í samstarfi við ensku úrvalsdeildina og samtökin Talk About It Mate.

Stuðningsmönnum United verður boðið upp á tíu samverustundir á tímabilinu þar sem þeir geta rætt við sérþjálfaða ráðgjafa og sjálfboðaliða í öruggu umhverfi.

Rhys Bennett, fyrrum leikmaður United, tók nýverið þátt í sambærilegu verkefni á vegum samtakanna en faðir hans lést af völdum sjálfsvígs á síðasta ári, 51 árs gamall.

„Þetta er líklega eitt það áhrifamesta sem ég hef gert. Ég hef aldrei gert neitt þessu líkt áður. Mér líður enn betur en þegar ég gekk inn um dyrnar fyrir tveimur klukkustundum,“ sagði Bennett.

„Því meira sem ég tala um þetta og hleyp tilfinningunum út, því sterkari verð ég í daglegu lífi.“

Mike Richard, stofnandi Talk About It Mate, segir mikilvægt að nýta þann samtakamátt sem knattspyrnan býr yfir.

„Knattspyrnan hefur ótrúlegan mátt til að sameina fólk en það að vera umkringdur þúsundum manna þýðir ekki endilega að þér finnist þú tilheyra hópnum.“

Markmiðið er að gera umræðu um geðheilbrigði að eðlilegum hluta af daglegu lífi stuðningsmanna.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「DV.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读