Fyrrum framkvæmdastjóri NATÓ segir að Bretland og Frakkland eigi að senda hermenn til Úkraínu

Bretland og Frakkland ættu strax að senda hersveitir til Úkraínu. Þetta sagði Anders Fogh Rasmussen, fyrrum framkvæmdastjóri NATÓ, í samtali við breska dagblaðið The Telegraph.

Hann sagði að Bretland og Frakkland hafi reynt að mynda „bandalag viljugra þjóða“ í nokkra mánuði en þetta sé frekar bandalag þeirra sem bíða. Hann sagðist telja að þetta eigi að verða „aðgerðabandalag“ sem sendi hersveitir til Úkraínu.

„Maður getur ekki bara beðið eftir friðarsamningi, heldur verður maður að þrýsta á um frið með því að segja við Pútín: „Þú getur ekki hrætt okkur og við hjálpum Úkraínu við að verjast árásum á mikilvæga innviði.“

Hann sagði Donald Trump hafi ákveðið að taka sér stöðu við hlið Moskvu og þess vegna beri Evrópa ábyrgð á að hjálpa Úkraínu og þess vegna hvetji hann evrópska leiðtoga til að vakna.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「DV.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读