Eiður Ben í nýtt starf á Akureyri
Eiður Benedikt Eiríksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Þórs en um nýja stöðu er að ræða hjá félaginu.
Eiður mun hafa yfirumsjón með öllu starfi knattspyrnudeildarinnar með sérstakri áherslu á meistaraflokksliðin og umgjörð þeirra.
Hinn 35 ára gamli Eiður var aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla á síðasta tímabili auk þess að gegna starfi yfirmanns leikmannaþróunar. Hann lætur nú af þeim störfum og færir sig alfarið yfir á skrifstofuna.
Eiður hefur mikla reynslu af þjálfun á efsta stigi hér á landi og er með UEFA Pro þjálfaragráðu. Þá hefur hann lokið námi í íþróttastjórnun frá Johan Cruyff Institute í Barcelona.
Í tilkynningu frá Þór kemur fram að umsvif knattspyrnudeildarinnar hafi aukist töluvert á undanförnum árum og sé ráðning Eiðs liður í að mæta þeirri þróun.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗