Viðkvæmum upplýsingum stolið í tölvuárás á FIFA

Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA hefur staðfest að sambandið hafi orðið fyrir tölvuárás þar sem viðkvæmum persónuupplýsingum og fjárhagsgögnum var stolið.

Tölvuþrjótahópur sem kallar sig Handsome Boy Hacking Club hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni en alls er talið að rúmlega tólf gígabætum af gögnum hafi verið stolið.

Samkvæmt The Athletic eru meðal stolinna gagna persónuupplýsingar, fjárhagsgögn og skjöl tengd innflytjendamálum.

Tölvuþrjótarnir eru sagðir hafa birt gögnin á myrka vefnum og hótað því að birta frekari upplýsingar á næstunni.

„FIFA staðfestir að sambandið hafi orðið fyrir tölvuárás sem leiddi til óheimils aðgangs að persónuupplýsingum og viðskiptagögnum. FIFA vinnur náið með viðeigandi yfirvöldum, þar á meðal lögreglu,“ segir í yfirlýsingu sambandsins.

FIFA fordæmir árásina harðlega og segir hana fela í sér alvarlegt og óásættanlegt brot gegn friðhelgi einkalífs þeirra einstaklinga sem málið varðar.

FIFA er ekki eini stóri aðilinn í knattspyrnuheiminum sem hefur orðið fyrir tölvuárás að undanförnu en spænska úrvalsdeildin varð einnig fyrir slíkri árás fyrr í mánuðinum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「DV.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读