Jónína átti pláss á Jökli í túrnum örlagaríka en þurfti að hætta við
Í gærkvöldi greindi DV frá því að stýrimaðurinn Óli Ásgeir Stueland hafi átt að vera í túrnum á Jökli ÞH299 þegar skipið sökk á miðvikudagskvöld með þeim afleiðingum að þrír úr 17 manna áhöfn létust. Sá sem leysti Óla af var meðal þeirra þriggja sem létust. Tilfelli Óla er hins vegar ekki einstakt. Jónína Þórunn Hansen átti pláss á Jökli í túrnum örlagaríka en þurfti að hætta við. Sá sem kom í staðinn fyrir hana var einnig meðal þeirra sem létust.
Greint var frá þessu í útvarpsfréttum RÚV klukkan 10. Jónína hafði áður verið á Jökli en það var þegar skipið bar nafnið Nanoq og var gert út frá Grænlandi.
Jónína hefur mikla reynslu af sjómennsku og segir skipið hafa verið stöðugt og eitt það besta sem hún hafi verið á.
Til stóð að Jónína færi í túrinn örlagaríka sem endaði með þessum hörmulega hætti en hún þurfti að hætta við eftir að smábátur í eigu hennar og eiginmanns hennar sökk í Sandgerðishöfn. Segist Jónína hafa tekið þessa ákvörðun meðal annars þar sem þau hjónin hafi þurft að sinna tryggingamálum eftir að báturinn sökk.
Aðspurð um hvort hún viti hver hafi verið fenginn í staðinn fyrir hana í túrinn og hver afdrif viðkomandi urðu svarar Jónina því til að hún telji á að sá maður sé meðal þeirra látnu.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗