Ingimar Jónsson forstjóri Pennans: Áttfalt hærri skattur í skemmtiferðaskipi en á hóteli fyrir fjögurra manna fjölskyldu

Það er grundvallaratriði varðandi rekstur lítilla búða úti á landi, t.d. bókabúða, að fá ferðamannastrauminn, ekki síst frá skemmtiferðaskipunum, yfir sumartímann. Í ár og í fyrra varð merkjanlega vart við samdrátt vegna nýrrar skattheimtu á farþega skemmtiferðaskipa. Ingimar Jónsson, forstjóri Pennans, segir skattlagninguna á skemmtiferðaskipin vera í engu samræmi við gistináttaskattinn á hótelum. Ingimar er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Markaðarins.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

Þið seljið bækur í verslunum ykkar hringinn í kringum landið en þið leggið talsverða áherslu líka, er það ekki, á gjafavöru og vörur sem höfða kannski til ferðamanna?

„Við erum náttúrlega með íslenska litteratúrinn svolítið fyrir erlenda ferðamenn. Við erum með Independent People til dæmis. Það eru alltaf 3500 til 4000 bækur á ári og búið að vera lengi. Síðan erum við með minjagripi og lopa og ýmsa gjafavöru fyrir erlenda ferðamenn og þeir skipta okkur verulegu máli. Og var bara svolítið ný stoð undir okkar rekstur, við erum búin að vera í þessu í tíu ár.“

Já, já. Nú, ég man eftir því að þið voruð með verslanir sem voru undir öðru merki fyrir nokkrum árum.

„Já, og erum það. Við eigum Viking, The Viking, og Islandia niðri í Bankastræti líka, sem eru svona ferðamannaverslanir þannig að við þekkjum þann rekstur ágætlega.“

Já, já, þannig að þið eruð að hluta til svona ferðaþjónustufyrirtæki, má segja, tengist þeirri grein.

„Ekki spurning. Og fylgjumst mjög vel með því og fáum náttúrlega erlenda ferðamenn líka inn til okkar í flugstöðinni. Þannig að það var hægt en að taka þátt í þeirri bylgju þegar hún kemur.“

Nei, nei, það er alveg rétt og þið náttúrlega í ákveðinni svona kjörstöðu til að fara inn á þann markað.

„Ég get bara sagt það alveg nákvæmlega eins og það er að bara svona litlar búðir hjá okkur, eins og bara Ísafjörður. Hún er svo sem ekkert lítil, 250 fermetra verslun, og það er bara eitt af grundvallaratriðunum til að sá rekstur geti gengið að hafa þennan ferðamannastraum yfir sumarið og tala nú ekki um skemmtiferðaskipin.

Og nú sjáum við náttúrlega bara frá 2025 og 26, þá með þessari skattlagningu sem var sett á skemmtiferðaskipin, þá er bara höggvið rosalega í afkomu þessara verslana.“

Já, er það?

„Já, þetta skiptir máli.“

Já, þið finnið þetta áþreifanlega?

„Ekki spurning. Og bara eitt lítið dæmi um áhrifin er að Steingrímur verslunarstjóri hjá okkur á Ísafirði, hann og dóttir hans hafa á undanförnum árum verið með þjónustu við erlenda ferðamenn í Bolungarvíkurkirkju. Þau spila og syngja. Hann fær frí hjá okkur til þess að fara og taka á móti fólki sem vill koma í kirkjuna og það eru tekin kannski nokkur lög. Þannig að þetta er bara út um allt á þessum stöð.

Mér hefur fundist þetta allt of mikið talað niður í raunverulega. Af því að þetta er bara svona viðbótarinnspýting inn í þessi samfélög og fyrir okkur sem erum að reyna að gera út verslun eins og bara Ísafirði eða Húsavík þá skiptir þetta gríðarlegu máli.“

Og þið finnið merkjanlega fyrir samdrætti þarna?

„Það er bara núna í ár og í fyrra. Eftir að 2500 karlinn var settur á haus. Sko, Ólafur, þetta eru 10.000 krónur á fjögurra manna fjölskyldu per nótt, þannig að þetta er mjög mikið. Þetta var lækkað reyndar í 1600 krónur en engu að síður er þetta, ég held að gistináttaskatturinn á hótelherbergi sé 800 krónur og þá á herbergi. Þannig að ef það er fjögurra manna fjölskylda í því herbergi þá borgar hún 800 krónur. En ef hún er í skemmtiferðaskipi þá borgar hún 6.400 krónur.“ 

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「DV.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读