Sigmundur Ernir skrifar: Það er stórt orð stórveldi
Það er stórt orð Hákot, eins og löngum hefur verið rætt og ritað, og það sama verður líka sagt um stórveldi, enda hefur okkur staðið ógn af því fyrirbrigði í heilan mannsaldur, eða allt frá því þau kváðu niður nasíska óværu undir miðja síðustu öld.
En upp frá því hafa þau ekki verið stærri en svo að allar innrásir þeirra og yfirtökutilburðir hafa mistekist og tapast, og það gjarnan hrapallega. Og kannski er það eina sem þau gátu í seinni tíð að há sitt kalda stríð án vopnaðra átaka, en stara þess heldur hvort á annað eins og forhertir fýrar sem kunna að telja í slaginn, en treysta sér ekki í hann.
Hernaðarsaga þessara svonefndu velda í austri og vestri er nefnilega ekki merkilegri en svo frá lyktum seinna heimsstríðsins að hún má í skásta falli kallast vandræðaleg.
Því allt hefur tapast. Ekkert hefur heppnast.
Byrjum á Sovétríkjunum sálugu sem geispuðu golunni fyrir hálfum fjórða áratug – og reyna nú í nafni Rússlands að rísa til fyrri áhrifa í austanverðri Evrópu. Og minnum okkur á það, áður en lengra er haldið, að innrás Pútínskra pótintáta til frænda sinna í Úkraínu síðla febrúar 2022 átti að klárast á sólarhring, eða í versta falli á viku, en þá væri rússneski fáninn kominn við hún í Kænugarði.
En árásarstríðið það arna er í anda annars blóðbaðs úr þeirri áttinni í meira en áttatíu ár. Það hefur mistekist hrapallega, og ber vott um hernaðarlegan vanmátt gamla gerska heimsveldisins. Herhlaup Sovétsins á andóf Ungverja 1956 og síðar Tékka 1968 var öðru fremur yfirgangur sem herti andstöðuna heima fyrir gegn andnauðu einræði og kokkáluðum kommúnisma sem til samans hafa ávallt – og hvar sem er – haldið aftur af mannréttindum og jöfnuði, svo og vexti og velferð í frjálshuga samfélögum.
En betra tók ekki við þegar Sovétið fór að horfa til fleiri átta. Sneypuför þess í Afganistan frá 1979 varð að lokum lítilsvirðing við Kremlarvaldið – og heita má að hernaður þess hafi sokkið í mýrina, eins og það var kallað á þeim tíma, en óvíða er landhernaður erfiðari en í samfelldum fjallabálki þessa asíska og ægistóra innlands. Eftir að Rússland tók svo við nafngift níðingsins í austri var þess freistað að ráðast á Georgíu, Moldóvu og Téténíu í tvígang og þar á eftir á Georgíu á nýjaleik, sem í öllum tilvikum skiluðu ekki tilætluðum árangri, rétt eins og innrásin í Úkraínu þegar liðið var fram á þann áratug nýrrar aldar sem enn er við lýði.
„Aldni fréttahaukurinn Dan Rather, sem hefur ekki legið á skoðunum sínum um skelfilega stjórnarhætti í Washington á Trumptímanum, segist ekki hafa upplifað veikara samfélag í Vesturheimi á 95 ára æviskeiði sínu …“
Sömu sögu er að segja af bardagakúnstum Bandaríkjamanna frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar, en hvergi hafa þeir haft fullan sigur í hernaðarbrölti sínu á þeim mannsaldri sem liðinn er frá téðri heljarslóðarorrustu. Kóreustríðið kemur fyrst upp í hugann, sem kveða átti niður kommúníska óværu, en hún er enn á sínum stað og raunar ófyrirleitnari en nokkru sinni fyrr. Og ætli megi ekki heita svo að þátttaka bandarískra hermanna í Víetnam stríðinu þar á eftir sé einhver skelfilegasta birtingarmynd á bölvun stríðstóla í síðustu öld, og er þar þó af nægu að taka. Strandhögg Bandaríkjunum á þeim tíma í Austurlöndum fjær er ævarandi smánarblettur á sögu valdsins í Washington.
Og þá er næst að nefna Afganistan öðru sinni. Bandaríski hernaðurinn þar í landi um tuttugu ára skeið, allt frá hausti 2001 til jafnlengdar 2021, sem svar við hryðjuverkaárásunum á austurströnd Bandaríkjanna, minnti um margt á háðulega útreið Sovétmanna þar í landi, sem lokið hafði með algerum ósigri aðeins áratug áður, og veitti Kremlarvaldinu slíkt efnahagslegt og pólitískt högg að það missti tök sín á Varsjárveldinu í kring. Í tilviki Bandaríkjanna þar í landi var stríðsbröltið ekki skárra en svo að það skilaði Talibönum aftur til valda, sem færði svo afganska þjóð í annað sinn til miðalda.
Og ber þá nokkuð að nefna Donald nokkurn Trump og klerkastjórnina í Íran. Henni átti að slátra á innan við sólarhring, eða var það kannski yfir helgi, en veruleikinn er auðvitað allt annar, eins og jafnan fyrr og síðar. Bandarískar leyniþjónustustofnanir telja að Íran búi enn yfir um 70 prósentum af eldflaugabirgðum sínum og haldi megninu af skotgetu sinni, þrátt fyrir fullyrðingar Donalds Trump um að hernaðarmáttur landsins hafi verið „gjöreyðilagður“ í brölti hans fyrir botni Miðjarðarhafs, sem staðið hefur yfir lungann úr þessu ári, með velþóknun stríðshaukanna í Tel Avív.
Gömlu heimsveldin eru særð. Mynd þeirra er máð. Aldni fréttahaukurinn Dan Rather, sem hefur ekki legið á skoðunum sínum um skelfilega stjórnarhætti í Washington á Trumptímanum, segist ekki hafa upplifað veikara samfélag í Vesturheimi á 95 ára æviskeiði sínu, en bragurinn á bandarískri þjóð hafi aldrei verið lítilsigldari. Og tíu árum yngri Bernie Sanders, sem enn er öldungadeildarþingmaður vestra, spyr nú nýverið hvort ekki sé við hæfi að leyfa böðlinum Netanyahu, sem skuli heita bæði lygari og stríðsglæpamaður, að stýra utanríkisstefnu Bandaríkjanna.
Nú, eða Pútín, vini Trumps í austri, má hér hnýta við.
Því svona er þá komið fyrir „stórveldunum“.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗