Velta því fyrir sér hver tekur við starfi Davíðs Snorra í Laugardalnum - „Hefur sagt já og amen við öllu“
Mikael Nikulásson telur ólíklegt að Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, ráði til sín aðstoðarþjálfara sem hafi mjög sterkar skoðanir …
433
Laugardaginn 28. nóvember 2026 12:30
Arnar Gunnlaugsson, Davíð Snorri Jónasson og Fjalar Þorgeirsson. Mynd DV/KSJ
Mikael Nikulásson telur ólíklegt að Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, ráði til sín aðstoðarþjálfara sem hafi mjög sterkar skoðanir fari svo að Davíð Snorri Jónasson yfirgefi landsliðsþjálfarateymið.
Davíð Snorri er sterklega orðaður við aðstoðarþjálfarastarfið hjá Swansea þar sem Freyr Alexandersson er á leiðinni að taka við stjórastarfinu.
Málið var til umræðu í hlaðvarpsþættinum Þungavigtinni.
„Ég hef þekkt Arnar í mörg ár og verið í miklum samskiptum við hann. Þið sjáið alveg langar leiðir að Arnar vill ekki hafa mikið af aðstoðarmönnum, hann vill fara sínar leiðir. Davíð Snorri hefur sagt já og amen við öllu, ég er pottþéttur á því,“ sagði Mikael.
„Þú sérð hvernig Arnar hefur talað um gullkynslóðina, Lars og Heimi. Hann fer sínar leiðir, sumum finnst hann tala of mikið. Ég hef fáránlega gaman af viðtölum við hann. Hann tekur ekki neinn Heimi Hallgrímsson með sér.“
Mikael nefndi Arnar Grétarsson sem dæmi um þjálfara sem hann teldi ólíklegt að yrði ráðinn í starfið.
„Arnar Grétarsson hefur til dæmis allt of miklar skoðanir. Hann vill bara hafa sitt. Þetta er ekki neikvætt frekar en jákvætt, hann tekur engan nei-mann með sér.“
„Ég held að þetta hafi verið þægilegt með Davíð. Ef hann fer þá kemur enginn sem ýtir við hans stöðu eða breytir einhverju,“ sagði Mikael.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗