Álfahugmyndir fyrir þreytta jólaálfa í desember

Á mörgum íslenskum heimilum er það orðin hefð að taka á móti jólaálfum.

Fókus

Laugardaginn 28. nóvember 2026 08:00

Samsett mynd/Pinterest/Pexels

Á mörgum íslenskum heimilum er það orðin hefð að taka á móti jólaálfum. Fyrir þá sem ekki þekkja til urðu þessar heimsóknir að hefð í kringum 2020 og má þær rekja til bókarinnar The Elf on the Shelf sem kom út í Bandaríkjunum árið 2005 og má rekja til fjölskylduhefðar sem nær aftur til áttunda áratugarins. Strax í kringum 2007-2008 voru álfarnir farnir að dúkka upp á heimilum víða um heim. Þessa álfa má finna í hillum margra verslana hér á landi og síðustu ár er það umtalað á göngum yngstu bekkja grunnskóla hvað álfarnir gerðu heima hjá hverjum og einum. 

Það sem þetta gengur út á að er að á hverjum morgni þegar barn eða börn heimilisins vakna þá er álfurinn eða álfarnir búnir að gera eitthvað fyndið. 

Þrautseigjan í þeim er mismunandi eftir heimilum. Stundum birtast þeir 1. desember og fara svo 11. desember, þá eru þeir farnir þegar Stekkjastaur kemur til byggða. 

Á öðrum heimilum er því öfugt farið og birtast þeir ekki fyrr en 12. desember samhliða Stekkjastaur og halda áfram fram á aðfangadag eða jóladag. 

Á heimilum með þrjóskustu álfana eru þeir alveg frá 1. desember og fram á aðfangadag. Mismunandi er hvort það megi snerta álfinn milli heimila, stundum má ekki hrófla við honum á meðan dæmi eru um að 

Álfarnir eiga það til að vera mjög hugmyndaríkir og gera alls konar prakkarastrik líkt og sjá má dæmi um á Pinterest og í Facebookhópnum Elf on the shelf Íslandi. Oft er um að ræða stórbrotnar sýningar þar sem álfarnir eru búnir að vefja inn klósettið eða vaskinn, eða þá að gera eitthvað sem krefst iðnaðarryksugu og terpentínu til að ganga frá. 

Margir álfar hafa ekki þrek, tíma, geðheilsu eða klósettfjöldann í gífurlega hrekki sem þessa. Mynd/Pinterest

Margir álfar hafa alveg skilning á því að jóladagatal, stundum fleiri en eitt, og skógjafir í bland við vinnu, skólasýningar, jólabakstur og almenna jólablóðþrýstingshækkun að ekki er hægt að setja á fót daglegar stórsýningar og því hefur Fókus tekið saman nokkrar hugmyndir að mjög einföldum leiðum til að gera eitthvað án þess að það þurfi að taka mikinn tíma eða fyrirhöfn, sumir jólaálfar eiga það til að verða dálítið þreyttir í desember.

Í skóinn - Málið dautt

Kornflexkassinn góði

Þar sem álfurinn er hrekkjóttur þá má hann alveg fara í feluleik - Til dæmis í hnífaparaskúffunni - Eða annarri skúffu

Inni í klósettrúllunni – Klassík

Lesa bók – Enn betra ef barnið fæst til að lesa fyrir hann

Ljósakrónan - Gæti þurft stól til að komast upp

Að lita í litabók eða á blað – Ein lína á pappír og álfurinn heldur á litnum

Að púsla – Í púsluspilskössum eru yfirleitt tvö eða þrjú púsl föst saman frá því síðast, þá er álfurinn byrjaður á púslinu - Ekki verra ef barnið getur hjálpað við að klára

Í náttfatapartý – Álfurinn þarf ekkert að panta á sig eitthvað náttfatasett til að fara í náttfatapartý, það dugar að vera uppi í rúmi 

Rúmið má líka vera box af snýtipappír

Tússpenni - Það þarf bara að passa að ramminn sé úr gleri og þetta sé ekki eitthvað ofurtúss

Örlítið flóknara en fyndið - Nærbrók og límband og upp á ísskáp

Í fríi – Það er alveg þekkt að álfur skilji eftir post-it miða, sem finnst jafnvel síðdegis daginn eftir, um að hann sé á sama stað og í gær því hann er í fríi - Álfar geta stundum alveg orðið þreyttir í desember

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「DV.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读