Óttar Guðmundsson skrifar: Bókasýning/bókamarkaður í Hörpu
Mynd
Um síðustu helgi var haldinn bókamarkaður/bókasýning í Hörpunni. Öllu var tjaldað til. Útgefendur sýndu á misstórum básum útgefnar bækur sínar. Höfundar afgreiddu á sumum básanna og reyndu að vera sýnilegir. Síbyljuupplestur fór fram á sviði í anddyrinu. Ég gekk um sýningarsvæðið með spekingssvip og ræddi við marga sem þar voru. Höfundar horfðu á mig mænandi bænaraugum eins og litla stúlkan með eldspýturnar í ævintýri HC Andersens. Ég fékk vonda samvisku þegar ég horfði á þessa áhyggjufullu menn sem reyndu allt hvað þeir gátu til að vekja athygli á bókinni sinni. Áður en varði var ég búinn að kaupa margar bækur og troða ofan í litla kerru sem ég hafði meðferðis.
Ég reyndi að komast hjá því að kaupa nýja útgáfu Njálu af Guðna Ágústssyni enda á ég einar tíu Njáluútgáfur. Þegar ég gekk frá básnum hans fann ég ásakandi og brennandi augnaráð á bakinu. Fullur af skömm og samviskubiti sneri ég við og keypti bókina og sagðist ætla að nota hana til gjafa. Guðni áritaði bókina eins og höfunda er siður enda er hann nýbúinn að opinbera hver skrifaði Brennu-Njálssögu.
Ég keypti enn eina bókina um þá Reynistaðabræður. Þjóðin fær aldrei nóg af örlögum þeirra bræðra og þá ógæfu sem græni liturinn kallar yfir afkomendur þeirra. Almennt slæmt gengi grænklæddra knattspyrnuliða eins og Breiðabliks og margra Afríkuþjóða held ég að megi rekja til óljósra tengsla við Reynistaðabræður. Þessi nýja bók er mikil harmsaga þar sem græni liturinn er allsráðandi og Jón gamli Austmann ríður einhentur gegnum hríðina. Bölvun bræðranna lifir góðu lífi og er flutt til Kaupmannahafnar.
Ég keypti bæði bók um Thorsarana og verðlaunakúna Huppu frá Kluftum. Kýrin horfði svo biðjandi á mig frá kápusíðunni.
Ég þorði ekki að líta á yfirlitið frá ViSA kortinu heldur flýtti mér að koma bókunum fyrir heima. Mórallinn er sá að meðvirkir menn eins og ég ættu að fara á Alanonfund eða sjálfstyrkingarnámskeið áður en þeir halda á bókamarkað þar sem mikið er af höfundum. Að öðrum kosti fyllist maður svo mikilli meðaumkun og hjálpsemi að ólíklegustu bækur rata ofan í kerruna. „Ég nota þessar bækur til jólagjafa,“ sagði ég við konuna mína. Hún benti mér á að þær eru allar áritaðar til mín persónulega. Meira að segja Huppa frá Kluftum páraði kveðju á titilsíðuna.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗