Dásama Ingvar sem persónu og leikmann - „Pælið í því hvað lífið er hverfult“

Andlát Ingvars Jónssonar, markvarðar Víkings og fyrrum landsliðsmanns Íslands, var til umræðu í hlaðvarpsþættinum Þungavigtinni þar sem þáttastjórnendur minntust hans með hlýjum orðum.

Ingvar hafði barist við krabbamein undanfarna mánuði en hann lék fimm leiki með Víkingi í upphafi tímabilsins áður en hann greindist með sjúkdóminn.

Ríkharð Óskar Guðnason ræddi hversu skjótt skipast getur veður í lofti.

„Gríðarlega sorglegt. Pælið í því hvað lífið er hverfult. Hann byrjar tímabilið og spilar fimm leiki, fer í skoðun og er greindur. Farinn fyrir áramót,“ sagði Ríkharð.

Kristján Óli Sigurðsson rifjaði upp síðasta leik Ingvars á ferlinum og benti á þann mikla fjölda fallegra kveðja sem birst hafa í kjölfar andláts hans.

„Hann spilar í Keflavík, fer út af í hálfleik og sneri ekki aftur á fótboltavöllinn. Við sjáum það á kveðjunum frá öllum þessum leikmönnum úr landsliðinu. Stórkostlegur drengur og leikmaður, stórkostlegur.“

Kristján fór einnig yfir glæsilegan feril Ingvars sem varð Íslandsmeistari með bæði Stjörnunni og Víkingi, auk þess að eiga farsælan atvinnumannaferil erlendis.

„Fimm titlar á Íslandi, besti leikmaður Íslandsmótsins 2014 og flottur atvinnumannaferill. Þetta er sorglegt,“ sagði Kristján.

Mikael Nikulásson tók undir með félögum sínum en hann hafði hitt Ingvar nokkrum sinnum í gegnum árin.

„Ég þekkti Ingvar ekki mikið en hitti hann nokkrum sinnum. Toppdrengur. Þetta er hræðilegt og ég sendi fjölskyldunni samúðarkveðjur,“ sagði Mikael.

Kveðjurnar úr knattspyrnusamfélaginu undanfarna daga bera þess merki hversu mikils metinn Ingvar var, ekki aðeins fyrir frammistöðu sína á knattspyrnuvellinum heldur ekki síður fyrir þann mann sem hann hafði að geyma.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「DV.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读