Vill sjá Gyökeres í byrjunarliðinu gegn City

Paul Merson, fyrrum leikmaður Arsenal og sérfræðingur Sky Sports, vill sjá Viktor Gyökeres í byrjunarliði Arsenal þegar liðið tekur á móti Manchester City í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudag.

Gyökeres skoraði í 1-1 jafntefli Arsenal gegn Borussia Dortmund í Meistaradeildinni í vikunni en það var hans fyrsta mark á Emirates-leikvanginum í rúmlega 200 daga.

Sænski framherjinn hefur aðeins leikið 181 mínútu í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

„Hann hefur ekki spilað mikið og frammistaða hans hefur verið upp og niður en ég myndi líklega spila honum gegn Manchester City,“ sagði Merson.

„Miðverðirnir munu ekki kunna að meta lætin í honum. Vandamál City á tímabilinu hafa komið í ljós þegar pressað hefur verið á varnarmenn liðsins.“

Merson telur að Gyökeres henti betur í þennan tiltekna leik en Kai Havertz.

„Ef þú spilar Havertz verður leikurinn fyrir framan varnarmenn City og þeir verða sáttir við það. Gyökeres tekur hlaupin inn fyrir og það skapar mikil vandamál fyrir Marc Guehi og Ruben Dias.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「DV.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读