Lenti bílslysi á leið á æfingu í gær

Pierre-Emerick Aubameyang, framherji spænska úrvalsdeildarfélagsins Deportivo La Coruna, lenti í bílslysi á leið á æfingu í gærmorgun.Ferrari-bi…

Hörður Snævar Jónsson

Föstudaginn 27. nóvember 2026 21:30

Aubameyang var frábær fyrir Arsenal á sínum tíma. Getty Images

Pierre-Emerick Aubameyang, framherji spænska úrvalsdeildarfélagsins Deportivo La Coruna, lenti í bílslysi á leið á æfingu í gærmorgun.

Ferrari-bifreið Aubameyang lenti í árekstri við BMW-bifreið á hraðbraut á norðvesturhluta Spánar með þeim afleiðingum að síðarnefnda bifreiðin valt.

Lögregla, slökkvilið og sjúkraflutningamenn voru kölluð á vettvang en enginn slasaðist alvarlega.

Aubameyang gat haldið för sinni áfram, mætti tímanlega á æfingu og tók fullan þátt í henni.

„Þetta var bara smá skrekkur. Svona hlutir gerast í lífinu. Það mikilvægasta er að það er í lagi með hinn aðilann sem lenti í slysinu og mig líka,“ sagði Aubameyang.

Framherjinn, sem er 37 ára gamall, á leik gegn sínum gömlu félögum í Barcelona á sunnudag.

Aubameyang skoraði fimm mörk í fyrstu fimm leikjum sínum á tímabilinu áður en hann meiddist á hné.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab