Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkurinn hækkar skatta á Seltjarnarnesi – skipbrot – Þór bæjarstjóri hlýtur að víkja
Sjálfstæðismenn sem farið hafa með meirihluta í bæjarstjórn Seltjarnarness frá upphafi hafa ávallt lagt höfuðáherslu á að útsvar á Nesinu sé lægra en í nágrannasveitarfélögum. Þetta hefur verið kjarninn í stefnu þeirra í bæjarmálum á Seltjarnarnesi og þeir hafa lagt höfuðáherslu á að halda þessu og montað sig stöðugt af því að hafa lægri skatta en aðrir. Þeir hafa, að eigin sögn, verið rekstrarsnillingar á meðan aðrir hafa verið haldnir skattaæði, bæði þeir sem hafa lagt til ábyrga fjármálastjórn á Nesinu og eins hinir, í nágrannasveitarfélögunum, sem hafa ákveðið hærri útsvarsprósentur en Sjálfstæðismeirihlutinn á Nesinu. Montstefna flokksins hefur leitt til skefjalausrar skuldasöfnunar og óráðsíu í rekstri. Nú er svo komið að þetta litla bæjarfélag skuldar 9,5 milljarða króna og er komið á svartan lista hjá eftirlitsnefnd sveitarfélaga, ásamt Strandabyggð og Vopnafirði, tveimur litlum og afskekktum hreppum úti á landi. Óábyrg stefna Sjálfstæðisflokksins er nú að koma íbúum bæjarins í koll og markar skipbrot flokksins á Nesinu.
Orðið á götunni er að Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri geri sér nú ljóst að mikil hætta sé fyrir hann á því að honum verði vikið á brott sem bæjarstjóra og hæfum og ábyrgum manni falið að vinna úr þeim ógöngum sem bærinn hefur nú ratað í. Á fyrstu sex mánuðum þessa árs var tap bæjarsjóðs 521 milljón króna þó að fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir afgangi. Þór var borubrattur fyrir kosningar sl. vor og hafði þá ekki fyrir því að upplýsa bæjarbúa og kjósendur um þá váboða sem hljóta að hafa verið ljósir. Íbúar Seltjarnarness eru 4.600 og afkoman og skuldastaðan er hlutfallslega úr takti við öll nágrannasveitarfélögin. Þessi vonda staða verður skýrð annars vegar með slakari rekstri á Seltjarnarnesi en annars staðar og hins vegar með þeirri montstefnu að halda við lægri skattheimtu þegar bærinn er rekinn með tapi og á yfirdráttum ár eftir ár eftir ár. Í heilan áratug.
Flestir aðrir en bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa séð þetta og gert sér ljóst að illa færi á endanum eins og nú er komið á daginn. Fjármálastefna Seltjarnarness hefur siglt í strand og Sjálfstæðisflokkurinn, sem ber fulla ábyrgð á henni, hefur beðið skipbrot.
Í vikunni var boðið til neyðarfundar með íbúum til að kynna ráðstafanir, meðal annars að hækka nú loks útsvarið úr 14,54% í 14,93%, sem er vitanlega ekki neitt gleðiefni, en lægra útsvari hefur verið haldið úti í bænum um árabil með skuldasöfnun vegna þess að engar forsendur voru fyrir montstefnu Sjálfstæðisflokksins sem rekin er á yfirdrætti.
Tilkynnt var um aðrar ráðstafanir sem virka frekar léttvægar í ljósi þess mikla fjárhagsvanda sem stjórnendur bæjarins hafa komið honum í.
Orðið á götunni er að heldur hafi verið lágt risið á Þór Sigurgeirssyni bæjarstjóra þegar hann kom fram í sjónvarpsviðtali miðvikudaginn 25. nóvember. Þar var ekki á ferðinni sami glaðbeitti maðurinn og talaði til kjósenda fyrir kosningar í maí á þessu ári – en þá var allt í himnalagi að hans mati. Nú lítur þetta illa út. Allt svart. Og hver skyldi vera skýringin á því að mati bæjarstjóra Sjálfstæðisflokksins?
Þór sagði í viðtalinu við RÚV: … verðbólguumhverfið …..„er hreinlega að drepa bæjarsjóð Seltjarnarness, eins og aðra bæjarsjóði.“
Einmitt. Hvers vegna er verðbólga að „drepa“ Seltjarnarnes svona miklu meira en önnur sveitarfélög á landinu? Vitanlega er ekki svo. Verðbólga er hin sama um land allt en nær engin sveitarfélög eru eins illa rekin og illa stödd og Seltjarnarnes, þetta 4.600 manna samfélag hátt launaðra íbúa. Verðbólgan er ekki svarið á Nesinu og ekki heldur lífeyrisgjöld sem alls staðar þarf að greiða. Svarið er sleifarlag í rekstri og óráðsía í fjármálum bæjarins.
Þór Sigurgeirsson hefur verið bæjarstjóri og leiðtogi Sjálfstæðisflokksins frá árinu 2022 og ber meginábyrgðina á ástandinu frá þeim tíma. En Þór er ekki höfundur þessarar ábyrgðarlausu stefnu. Hann tók einfaldlega við keflinu af Ásgerði Halldórsdóttur, öðrum vonlausum og óábyrgum leiðtogum flokksins, og hélt sömu stefnu áfram.
Orðið á götunni er að ekki verði lengur sakast við Ásgerði því hennar tími er liðinn. Þór gerði ekkert á síðasta kjörtímabili til að laga stöðuna og hélt áfram ferðinni fram af brún hengiflugs fjármála Seltjarnarness.
Orðið á götunni er að Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri og leiðtogi Sjálfstæðisflokksins, verði því að víkja svo fjárráðin verði ekki tekin af bænum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗