Gunnar kaupir það ekki að Breiðablik ætli að borga þessa upphæð fyrir Benedikt

Benedikt Waren er sterklega orðaður við Breiðablik en útlit er fyrir að hann yfirgefi Stjörnuna og gangi til liðs við Kópavogsfélagið.Möguleg fé…

Benedikt Waren er sterklega orðaður við Breiðablik en útlit er fyrir að hann yfirgefi Stjörnuna og gangi til liðs við Kópavogsfélagið.

Möguleg félagaskipti Benedikts voru til umræðu í hlaðvarpsþættinum Dr. Football þar sem meðal annars var rætt um kaupverðið á leikmanninum.

Gunnar Birgisson telur ólíklegt að Blikar þurfi að reiða fram 20 milljónir króna fyrir Benedikt en Stjarnan keypti hann frá Vestra á 13 milljónir punda.

„Ég kaupi ekki að Benedikt Warren verði keyptur á eitthvað í kringum 20 milljónir,“ sagði Gunnar.

Viktor Unnar Illugason sagðist hafa heimildir fyrir því að kaupverðið yrði heldur lægra.

„Ég er að heyra að þetta verði í kringum 15-16 milljónir, hann er Bliki,“ sagði Viktor Unnar.

Það yrði engu að síður um ansi háa fjárhæð að ræða í félagaskiptum á milli tveggja íslenskra félaga fari svo að þessar tölur reynist réttar.

Miðað við umræðuna í þættinum virðist Viktor Unnar telja líklegt að Benedikt verði í herbúðum Breiðabliks á næsta tímabili.

Það verður áhugavert að sjá hvort félögunum takist að komast að samkomulagi um kaupverðið en ekki hefur verið staðfest að félagaskiptin séu í höfn.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab