Þurftu að fjarlægja getnaðarlim manns vegna læknamistaka
Spítali í Svíþjóð hefur viðurkennt að læknamistök hafi átt sér stað í krabbameinsmeðferð manns. Vitlaus líffæri voru fjarlægð og olli það því að…
Spítali í Svíþjóð hefur viðurkennt að læknamistök hafi átt sér stað í krabbameinsmeðferð manns. Vitlaus líffæri voru fjarlægð og olli það því að fjarlægja þurfti getnaðarliminn af honum síðar.
Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.
Læknamistökin áttu sér stað árið 2023 en spítalinn í Skaraborg, í suðurhluta Svíþjóðar, hefur nú gengist við þeim. Var sjúklingur þar ranglega greindur með krabbamein í blöðruhálskirtli þegar hann var í raun með krabbamein í þvagrás.
Vegna þessarar röngu greiningar fékk krabbameinið að vaxa í sjö mánuði. Þegar þetta loksins uppgötvaðist var það um seint. Fjarlægja þurfti getnaðarliminn allan sem og þvagblöðruna og blöðruhálskirtilinn. Vegna þessa þurfti að koma fyrir stóma poka sem maðurinn losar nú allt þvag og hægðir um.
Mannleg mistök
Spítalinn hefur viðurkennt að þessar aðgerðir hefðu ekki endilega þurft að eiga sér stað ef rétt greining hefði verið gerð í upphafi. Tekið er hins vegar fram að sýnin hefðu verið rannsökuð hjá svissnesku fyrirtæki, Unilabs, sem er með aðsetur í Skövde.
Unilabs hafa einnig viðurkennt mistök í málinu. Að sögn fyrirtækisins var um mannleg mistök að ræða. Skorti á þjálfun starfsmanns og lítilli sérfræðiþekkingu. Ekki kemur hins vegar fram hvort málið hafi einhverjar afleiðingar fyrir starfsmanninn og heldur ekki hvort að fyrirtækið hyggist greiða sjúklingnum bætur.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗