Sjóslysin sem mótuðu Ísland og Íslendinga

Sjóslys fiskiskipsins Jökuls austan við Gletting er eitt mannskæðasta sjóslys síðari ára. Þrír létust en fjórtán var bjargað á ótrúlegan hátt við gríðarlega erfiðar aðstæður.

Stór sjóslys sem þessi eru orðin fátíð, meðal annars vegna betri menntunar, meira öryggis og tækni. En Íslendingar þekkja vel hin mannskæðu sjóslys fortíðarinnar þar sem skip og bátar hurfu stundum eins og dögg fyrir sólu og lítið annað hægt að gera en að geta í eyðurnar og brakið.

DV leit yfir sviðið og skoðaði mannskæðustu sjóslysin á lýðveldistímanum.

Gríðarleg ísing á togurunum við Nýfundnaland í óveðrinu mikla árið 1959

Nýfundnalandsveðrið 1959

Gríðarlegt óveður skall á í febrúar árið 1959 á miðunum við Nýfundnaland í Kanada þar sem margir íslenskir togarar voru á karfaveiðum. Urðu togararnir fyrir gríðarlegri ísingu.

Togarinn Júlí frá Selvogsbanka fórst í óveðrinu og með honum þrjátíu skipverjar.

Litlu munaði að sömu leið færi togarinn Þorkell Máni frá Reykjavík. Varð skipið fyrir mikill ísingu og þurftu skipverjar að hafa sig alla við við að berja ísinn af sem og að losa björgunarbáta og allt lauslegt til að rétta skipið við svo það færi ekki á hliðina.

Önnur íslensk skip lentu einnig í miklum háska, svo sem Bjarni Riddari, Júní og Marz. Kanadíski togarinn Blue Wave fórst einnig með sextán manna áhöfn.

Stuðlabergsslysið 1962

Aðfaranótt 18. febrúar árið 1962 fórst síldarbáturinn Stuðlaberg frá Seyðisfirði út af Stefnesi á Reykjanesi með ellefu manna áhöfn eftir að hafa verið á veiðum við Suðurland.

Stuðlaberg var á leið til Keflavíkur eins og mörg önnur skip en ekkert heyrðist í honum eftir að hann var staddur út af Selvogi. Þegar báturinn kom ekki til Keflavíkur var talið að hann hefði farið til Hafnarfjarðar til að landa. En þegar ekkert hafði heyrst af bátnum var Slysavarnafélagi Íslands gert viðvart þann 21. febrúar.

Snemma var hins vegar ljóst að báturinn hafði farist og rak brak á fjörur milli Hafna og Garðskaga. Þá fannst einnig lík eins skipverjans við bæinn Fuglavík.

Páskahretið mikla 1963

Þann 9. og 10. apríl, fyrir páskana árið 1963, skall á mikill norðanstormur þegar hiti datt skyndilega niður eftir mikil hlýindi. Fjögur skip fórust í þessu óviðri og alls 18 sjómenn, flestir úr Eyjafirði.

Eitt þekktasta fiskiskip landsins, Súlan frá Akureyri smíðuð 1902, sökk eftir að hafa fengið á sig brotsjó við Garðskaga á Reykjanesi. Sex úr áhöfn Súlunnar var bjargað en fimm fórust.

Tvö skip frá Dalvík sukku, Hafþór og Valur, með alls sjö mönnum, sem og Magni frá Þórshöfn með tveimur. Þá féllu tveir sjómenn útbyrðis og létust af skipinu Hring frá Siglufirði og tveir sjómenn af þýskum togara.

Hamfaraveðrið í Ísafjarðardjúpi 1968

Fárviðri gekk yfir Vestfirði dagana 4. og 5. febrúar árið 1968 með voveiflegum afleiðingum fyrir sjófarendur á Ísafjarðardjúpi.

Alls fórust 26 sjómenn á þremur skipum, Heiðrúnu II frá Bolungarvík og tveimur breskum togurum, Ross Cleveland og Notts County.

Einn bjargaðist af Ross Cleveland sem fórst við minni Skutulsfjarðar en einn komst lifandi í land.  Hlutfallið var öfugt á Notts County sem strandaði við Sandeyri. Það er nítján björguðust en einn drukknaði.

Sex íslenskir sjómenn fórust með Heiðrúnu II, sennilega um 3 sjómílur utan við Vébjarnarnúp en skipið var á leið til Ísafjarðar.

Þráinsslysið 1968

Árið 1968 átti eftir að færa þjóðinni meiri sorg því að þann 5. nóvember það ár fórst vélbáturinn Þráinn austan við Vestmannaeyjar í aftakaveðri. Með bátnum fórust níu menn, þar af átta frá Vestmannaeyjum og eru nöfn þeirra rituð á minnisvarðann á Skansinum.

Ekkert fannst af bátnum nema lauslegir munir sem honum tilheyrðu þrátt fyrir mikla leit á sjó og úr lofti.

Sigurfari hvolfdi 1971

Átta fórust þegar vélbátnum Sigurfara hvolfdi í innsiglingunni í Hornarfjarðarósi þann 17. apríl árið 1971 í vondu veðri. Tveir lifðu hremmingarnar af og náðu að synda frá bátnum og soginu.

Slysið var svo skammt frá landi að fólk þar sá þetta gerast. Þrír þungir brjotsjóir höfðu riðið yfir bátinn með þessum skelfilegu afleiðingum. Hafði olíuverið dælt í sjóinn til að minnka mesta brotsjóinn. Talið er að það hafi bjargað mönnunum tveimur, annars fannst í spýtnabraki en hinn velktist um í bjarghring.

Helliseyjarslysið 1984

Kvöldið 11. mars árið 1984 sökk vélbáturinn Hellisey við Vestmannaeyjar. Fimm voru um borð og fórust fjórir þeirra.

Einn þeirra, Guðlaugur Friðþórsson 22 ára, komst hins vegar lífs haf á ótrúlegan hátt þegar hann synti á sjötta kílómetra leið í ísköldum sjónum og myrkri að Heimaey. Þar með var afrekinu ekki lokið því hann átti eftir að brjótast gegnum úfið hraunið að byggð.

Ár hvert er haldið Guðlaugssund til minningar um þennan viðburð og árið 2012 byggði leikstjórinn Baltasar Kormákur kvikmynd sína Djúpið á slysinu.

Syneta og Suðurlandið 1986

Tvö skip fórust um jólin árið 1986, breska tankskipið Syneta og íslenska flutningaskipið M/S Suðurland.

Suðurlandið, sem var í eigu Nesskipa, sökk á aðfangadag um 290 sjómílur austan af Langanesi er það var á leið til Murmansk í Rússlandi með síld.

Af ellefu manna áhöfn komust átta í björgunarbát en hann var lekur og rifinn. Þar hírðust þeir í ellefu klukkustundir áður en nýjum björgunarbát var kastað til þeirra úr þotu. Dönsk þyrla, Vædderen, bjargaði þeim fimm sem eftir lifðu um miðjan jóladag.

Daginn eftir, annan í jólum, fórst Syneta við Skrúð á Austfjörðum. Skipið, sem sigldi frá Liverpool, var á leið til Vestmannaeyja en breytti um stefnu til Eskifjarðar í vondu veðri.

Skipið strandaði og hvorki björgunarbátar né þyrla komust að því. Tólf skipverjar, frá Bretlandi og Grænhöfðaeyjum, létust og ráku lík margra þeirra á land, í björgunarvestum en illa klædd. Einn fannst með lífsmarki en lést skömmu seinna.

Eldhamarsslysið 1991

Þann 22. nóvember 1991 fórust fimm ungir skipverjar á Eldhamri GK-13 þegar skipið strandaði á Hópsnestá skammt frá innsiglingunni að höfninni í Grindavík eftir að hafa verið á línuveiðum.

Stýrimaðurinn, sem komst einn lífs af, var ákærður fyrir manndráp af gáleysi en sýknaður af ákærunni.

Sjá einnig:

Fimm ungir menn fórust með Eldhamri - Skipverjinn sem lifði hélt að félagarnir kæmu sömu leið:„Þetta er búið að vera eins og skuggi eða poki á bakinu á mér í 35 ár“

Vegna misskilnings hjá vaktmanni Landhelgisgæslunnar var varnarliðsþyrla ekki kölluð út fyrr en um klukkustund eftir skipsstrandið en eina björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar á þeim tíma var biluð á Ísafirði. Þá höfðu skipverjarnir sex allir lent í sjónum þar sem Eldhamar sökk snögglega að framanverðu og lagðist á hliðina á meðan brotin gengu yfir skipið. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「DV.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读