Par með barn handtekið

Meðal þess sem kom til kasta lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt var par með barn meðferðis.

Í dagbók lögreglunnar kemur fram að í Laugardalshverfi í Reykjavík hafi par, í mjög annarlegu ástandi sökum ölvunar, sem var í hávaðarifrildi og með barn meðferðis verið handtekið. Parið var vistað í fangaklefa en ekki er tekið fram hvort það hafi verið látið deila klefa. Barninu var komið í umsjón barnaverndar.

Í miðborginni var aðili handtekinn vegna líkamsárásar og vistaður i fangaklefa.

Í Hafnarfirði var bifreið ekið útaf og reyndist ökumaður óslasaður en undir áhrifum áfengis og var hann vistaður í fangaklefa.

Tilkynnt var um partíhávaða í heimahúsi í Breiðholti, húseiganda var gert að lækka sem hann gerði.

Í Árbæ var aðili handtekinn vegna hótana. Viðkomandi var í annarlegu ástandi sökum áfengisneyslu og var vistaður í fangaklefa.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「DV.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读