Harmur Óla Ásgeirs: Átti að vera með í túrnum á Jökli – „Verulega þungbært að hugsa til hans og hinna tveggja sem fórust“

Óli Ásgeir Stueland var yfirstýrimaður á Jökli ÞH 299, sem sökk úti fyrir Austurlandi á miðvikudag, 14 skipverjum var bjargað úr sjónum en þrír …

Ágúst Borgþór Sverrisson

Föstudaginn 27. nóvember 2026 20:55

Óli Ásgeir Stueland. Mynd: Facebook.

Óli Ásgeir Stueland var yfirstýrimaður á Jökli ÞH 299, sem sökk úti fyrir Austurlandi á miðvikudag, 14 skipverjum var bjargað úr sjónum en þrír létust, þeir Aðalsteinn Steinþórsson, Eggert Ellertsson og Jacek Belina. 

Óli Ásgeir átti að vera með í þessum túr en var í landi vegna anna og einn þremenninganna sem létust leysti hann af. Óli segir að það sé honum afar þungbært að hugsa til mannsins sem sigldi í hans stað og hinna tveggja sem fórust. Hann segir jafnframt að síðasti sólarhringur hafi verið honum mjög erfiður og hann eigi erfitt með að ná utan um það sem gerðist. Hann sendir samúðarkveðjur til ástvina þeirra sem létust og jafnframt þakklætiskveðjur til björgunaraðila.

Óli birti pistil um þetta á Facebook-síðu sinni sem hann veitti DV góðfúslega leyfi til að endurbirta: 

„Það er erfitt að finna orð eftir að Jökull sökk austur af landinu í fyrradag og þrír menn fórust.

Ég er ráðinn yfirstýrimaður á Jökli og átti að vera með í þessum túr. Ég var í landi vegna lotu og prófa í skólanum og einn mannanna sem fórust var að leysa mig af sem stýrimaður í þessari ferð. Það er mér verulega þungbært að hugsa til hans og hinna tveggja sem fórust.

Hugur minn er hjá fjölskyldum þeirra, vinum og öllum sem eiga um sárt að binda. Ég sendi þeim mínar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning þeirra.

Ég vil líka senda samstarfsfélögum mínum sem börðust hetjulega hlýjar kveðjur. Þið hafið gengið í gegnum skelfilega lífsreynslu. Ég er innilega þakklátur fyrir að þið komust heim og vona að þið náið ykkur.

Síðasti sólarhringur hefur verið verulega erfiður. Ég á enn erfitt með að ná utan um það sem gerðist. Jökull var stórt og öflugt skip og mér datt aldrei í hug að þetta gæti gerst. Vinir eru farnir og vinnustaðurinn horfinn.

Að lokum vil ég þakka öllu því fólki sem kom að björguninni. Ég þakka Landhelgisgæslunni, áhöfn þyrlunnar sem skipti sköpum og áhöfn flugvélarinnar. Ég þakka björgunarsveitunum, starfsfólki heilbrigðisþjónustunnar, lögreglunni, áhöfnum skipanna sem brugðust skjótt við og komu á vettvang, starfsfólki Rauða krossins, útgerðinni GPG á Húsavík og öllum hinum sem lögðu sitt af mörkum við björgunina á samstarfsfélögum og vinum mínum á Jökli þh.

Svona slys snertir okkur öll.“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab