Einhverfur Breti með þroska á við 8 ára barn á yfir höfði sér 20 ára fangelsi í Tyrklandi
33 ára Breti, Louis Malletier, situr í fangelsi í Tyrklandi eftir að hafa verið handtekinn með 15 kíló af kannabisefnum í farangri sínum á flugv…
Pressan
Föstudaginn 27. nóvember 2026 21:00
Louis Mallatier. Youtube-skjáskot.
33 ára Breti, Louis Malletier, situr í fangelsi í Tyrklandi eftir að hafa verið handtekinn með 15 kíló af kannabisefnum í farangri sínum á flugvellinum í Istanbúl. Fjölskylda hans segir hann hafa verið gabbaðan til að flytja fíkniefnin í þeirri trú að hann hefði unnið ferð til Taílands. Hann á nú yfir höfði sér allt að 20 ára fangelsi.
Mirror greinir frá.
Malletier er með alvarlega einhverfu og samkvæmt fjölskyldu hans er andlegur þroski hans á við átta ára barn. Tvíburabróðir hans, Conor Colegate, segir glæpagengi hafa nýtt sér veikleika hans og blekkt hann til þátttöku í fíkniefnasmygli.
Atburðarásin hófst þegar Malletier sótti opnun skyndibitastaðarins Popeyes í Islington í London 16. september. Þar kom maður að honum og bauð honum að taka þátt í keppni þar sem vinningurinn var ferð til Taílands. Nokkrum dögum síðar fékk hann símtal þar sem honum var tilkynnt að hann hefði unnið ferðina og honum afhentir flugmiðar.
Malletier fór frá heimili sínu og hélt á Heathrow-flugvöll. Þegar hann kom til Suðaustur-Asíu átti hann að hafa fengið bleika ferðatösku frá ókunnugum manni sem sagði honum að ferðaáætlunin hefði breyst. Hann ætti nú að ferðast til Malaga á Spáni með millilendingu í Tyrklandi.
Malletier tók við töskunni án þess að vita hvað í henni var. Lögregla stöðvaði hann hins vegar á flugvellinum í Istanbúl og fann þar 15 kíló af kannabisefnum. Markaðsvirði fíkniefnanna er talið nema um 250 þúsund pundum, jafnvirði um 43 milljóna íslenskra króna.
Fjölskyldan frétti ekki af honum fyrr en 15. október þegar hann hringdi í föður sinn frá Tyrklandi eftir handtökuna. Að sögn bróðurins var hann skelfingu lostinn og grét í símanum. Hann sagðist ekki hafa vitað að fíkniefni væru í töskunni.
Ill meðferð í fangelsinu
Malletier hefur verið í Maltepe-fangelsinu í meira en mánuð. Bróðir hans segir hann hafa orðið fyrir einelti, ofbeldi og félagslegri einangrun af hálfu annarra fanga. Hann deili klefa með um 70 mönnum og fái ekki nauðsynleg lyf sem hann tekur dagsdaglega.
Colegate óttast að andlegri líðan bróður síns hraki hratt og að hann kunni að skaða sjálfan sig. Hann lýsir meðal annars atviki þar sem Malletier, eftir að hafa orðið fyrir árás samfanga, hellti heitu vatni yfir höfuð sér, reyndi að stinga sig með gaffli og drakk sjampó.
Lögmaður Malletier í Tyrklandi hefur óskað eftir réttargeðfræðilegu mati til að kanna hvort hann hafi haft nægan skilning á eðli og afleiðingum gjörða sinna. Jafnframt hefur hann vakið athygli fangelsisyfirvalda og breska ræðismannsskrifstofunnar á aðstæðum hans.
20 til 30 ára fangelsi
Samkvæmt tyrkneskum lögum getur refsing fyrir innflutning fíkniefna numið 20 til 30 ára fangelsi. Ef um er að ræða flutning fíkniefna í gegnum landið, án þess að þau séu ætluð þangað, getur refsingin verið 10 til 20 ár. Saksóknarar rannsaka nú hvort Tyrkland hafi verið áfangastaður Malletier eða aðeins millilending.
Breska utanríkisráðuneytið staðfestir að það aðstoði breskan ríkisborgara sem sé í haldi í Tyrklandi og að þau séu í sambandi við tyrknesk yfirvöld. Fjölskyldan segist þegar hafa greitt um 15 þúsund pund, rúmar 2,5 milljónir króna, í lögfræðikostnað og ferðalög vegna málsins.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗