14 ára stúlka var myrt – Skýra frá hryllilegri atburðarásinni
Í júní hvarf hin 14 ára Lilly Jones, aðeins nokkrum dögum fyrir afmælið hennar, sem bjó í bænum Blaina í Wales. Þegar hún fór út kvöld eitt sagð…
Pressan
Laugardaginn 28. nóvember 2026 20:30
Mynd úr safni. Mynd:Getty
Í júní hvarf hin 14 ára Lilly Jones, aðeins nokkrum dögum fyrir afmælið hennar, sem bjó í bænum Blaina í Wales. Þegar hún fór út kvöld eitt sagði hún föður sínum að hún ætlaði bara aðeins að skjótast. En hún sneri ekki aftur heim og þegar fjölskyldan fór að óttast um hana og náði ekki sambandi við hana hringdi hún í lögregluna.
Tveimur dögum síðar varð mesti ótti fjölskyldunnar að veruleika því þá fannst lík Lilly í skóglendi nærri heimili hennar.
Réttarhöldin yfir morðingja hennar hófust fyrir skömmu og þar hafa skelfilegar upplýsingar komið fram um málið að sögn Mirror.
Krufning sýndi að Lilly var stungin um 55 sinnum. Jafnaldri hennar, sem má ekki nafngreina vegna ungs aldurs hans, er ákærður fyrir morðið.
Saksóknarar segja að þau hafi þekkst og hafi ákveðið að hittast kvöldið sem Lilly hvarf.
Þegar hún sneri ekki heim setti fjölskyldan sig í samband við vini hennar í von um að þeir vissu um hana en án árangurs. Í kjölfarið var hvarf hennar tilkynnt til lögreglunnar.
Tveimur dögum síðar fann bæjarbúi lík hennar í skóglendi skammt frá heimili hennar.
Sönnunargögn hafa verið lögð fram í dómi og segja saksóknarar þau tengja hinn ákærða við morðið. Meðal annars fannst DNA úr honum undir fingurnöglum Lilly og hann var með skrámur á handleggjum.
DNA úr Lilly fannst á hnífi sem lögreglan fann í herbergi piltsins.
Hann neitar sök og heldur því fram að einhver annar hafi myrt Lilly.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗